Leikritið Svarta kómedían “Black Comedy” eftir Peter Shaffer er skemmtilegur en öðruvísi farsi og ég verð að segja að hugmyndin er “brilljant”. Frumsýnt föstudagskvöldið 14. október s.l. hjá Leikfélagi Akureyrar í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur.
Fyrsta húrra.
Það var afar þægilegt og skemmtilegt að vera í leikhúsinu þetta frumsýningarkvöld. Andinn í leikhúsinu er sérstakur á landsvísu og það er mikilvægt að þessi mikla menningarsaga, þetta hús og þessi leiklistarandi sem þarna er verði varðveittur um alla framtíð. Tel t.d. að það sé mikilvægt fyrir börnin okkar að komast í alvöru leikhús og fá að finna á eigin skinni hvernig þetta er. Starfsfólk og stjórnendur LA hafa unnið frábæra vinnu á erfiðum tímum og ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni án þess að vita það að allir hafi lagt extra hart að sér til að láta þetta allt saman ganga upp við erfiðar aðstæður.
Annað húrra.
Leikhópurinn er svo samstilltur og það er hvergi að finna veikan blett, já þetta er alveg magnað hve vel hefur tekist til í leikaravalinu og hve vel María leikstjóri hefur þjappað hópnum saman í eina sterka og kraftmikla heild.
Við vorum fimm saman á öllum aldri á frumsýningunni og á leiðinni heim ræddum við leikritið og ég spurði alla: “Hver fannst ykkur best eða bestur?” Svörin voru skemmtileg, enginn nefndi sömu persónuna og það er einmitt styrkur sýningarinnar hversu hópurinn er breiður og allir eru að gera vel. Persónusköpunin er góð. Í þessum órafmögnuðu aðstæðum er auðvelt að missa sig í að ganga of langt með persónurnar og/eða stela athyglinni. Stundum er það alveg á mörkunum og áhorfendur þurfa að horfa í fleiri en eina átt í einu, en í langflestum tilfellum er leikurinn og staðsetningarnar svo hárfínar, nákvæmar og flottar.
Einar Aðalsteinsson sem Bindsley Miller og Anna Gunndís sem Carol Melkett: Sterkir leikarar, gefa 100% af sér í þessari sýningu, framtíðin er klárlega björt. Sunna Borg sem Fröken Furnival: Það var gott að sjá hana á sviði aftur og alveg morgunljóst að hún hefur engu gleymt, hún var frábær. Guðmundur Ólafsson sem Melkett ofursti: Hann er alltaf góður og traustur og var einstaklega lipur og skemmtilegur í myrkrinu. Árni Pétur Guðjónsson sem Harold Gorringe: Dásamlegur leikari, svo fyndinn og skilar sínu hlutverki alveg uppá 10 +. Þóra Karitas Árnadóttir sem Cleo: Fædd í þetta hlutverk, sjarmerandi og einbeitt og henni líður greinilega vel á sviði. Ívar Helgason sem Scuppanzigh: Enn einn snillingurinn í þessum vel valda hópi, frábær persóna og virkilega vel gert hjá honum. Gestur Einar Jónasson sem Bamberger: Þegar að hann kom inn á sviðið þá lýsti hann upp myrkrið og það fór þæginda alda um salinn, hann er góður leikari og ég skora á hann og Sunnu að leika meira þau hafa mikið fram að færa.
Þriðja húrra
Öll vinna aðstandenda og listrænna stjórnenda er hnökralaus og hæfir uppsetningunni vel, þó verð ég minnast sérstaklega á búningana sem eru flottir og styðja vel við persónurnar sem hafa verið skapaðar. Þegar maður fer að hugsa um “lýsingu” í þessari rafmögnuðu sýningu kemur ósjálfrátt glott á mann eða þannig. En lýsingin er vel gerð, hófleg, hárrétt og fáguð.
Ég flokka uppsetningu LA á Svörtu kómedíunni sem gott leikhús og tel að hér sé frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna að fara saman í alvöru leikhús…”ég meina það… tryggið ykkur miða strax.”
Takk fyrir okkur – Lengi lifi LA, Húrra, húrra, húrra.
Júlíus Júlíusson
Matur og drykkur | Sunnudagur, 16. október 2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Höfundur: Harold Pinter Þýðing: Gunnar Þorsteinsson Leikstjórn: Jón Gunnar Þórðarson Leikmynd og búningar: Leikhópurinn Lýsing: Lárus Heiðar Sveinsson Leikmyndamálun: Steingrímur Þorvaldsson Tónlist Eyþór Ingi Gunnlaugssoon Hljóðmynd: Gunnar Sigurbjörnsson
Þögli Þjónninn
Leikfélag Akureyrar- Frumsýning 13. október 2010 í RýminuÞað er 50 ár frá fyrstu frumsýningu á “The dumb waiter” eða Þögla þjóninum sem að snillingurinn og Nóbelsskáldið Harold Pinter sem að lést á aðfangadag 2008 skrifaði.
Mér fannst vel við hæfi að frumsýning númer 300 hjá Leikfélagi Akureyrar væri á þessu verki. Pinter var góður spretthlaupari í æsku, Þögli þjónninn hjá LA er eins og gott og árangursríkt spretthlaup. Sýningin er rétt um ein klst. að lengd og ekkert hlé. Það er svo gott að eiga stund í leikhúsi og njóta heillar sýningar án utanaðkomandi athugasemda í hléi. Þannig var það með þessa áhugaverðu sýningu og eins og mér var að orði er ég kom út í lokin “þetta var leikhús”
Í þessum listilega skrifaða sígilda gamanleik bíða tveir leigumorðingjar í loftlausu kjallaraherbergi eftir næstu skipun. Þeir hafa unnið saman í fjölda ára, en í dag er eitthvað ekki eins og það á að vera. Undarlegar skipanir berast með matarlyftunni – að ofan.Leikararnir Atli Þór Albertsson og Guðmundur Ólafsson sitja afar vel í hlutverkunum og það var oft sem að þagnarstundirnar voru magnaðar og maður fann að salurinn naut þess að upplifa leikhúsið. Það er ekkert annað að segja um leikarana nema “Bravó” já og það sama má segja um alla aðstandendur. Ég held að vinnan á þessari sýningu hafið verið sérstök og allir sem að henni komu hafi unnið sem eitt lið og það lið hafi unnið af ástríðu. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur náð vel til leikaranna og hópsins og vitað hvað hann var að gera. Hér skilar hann snyrtilegri sýningu sem rennur afar vel. Leikhúsgestir á frumsýningarkvöldinu nutu hverrar mínútu í leikhúsinu þetta kvöld.Til að undirstrika hvað þetta var vel gert þá var það aðeins eitt sem að truflaði mig en það var þegar að Atli sem Gus notar eldspítur eins og tannstöngul, það minnti mig á þegar hann gerði slíkt hið sama sem Kristján IX í þjónn í súpunni og kannski gerir hann þetta sjálfur sem Atli. Leikmyndin, ljós, tónlist og hljóðmynd alveg til fyrirmyndar og féllu svo vel að verkinu, allt svo passlegt og rétt.
Leiksskrár hjá L.A eru alltaf veglegar og vel gerðar þannig er það einnig núna en ég geri samt athugasemdir við að það vantar mynd af tveimur aðstandendum sýningarinnar.
Ég er ekki í aðstöðu til að meta þýðingu Gunnars Þorsteinssonar á verkinu en ég veit að sumar setningarnar eru kannski betri á ensku. Ég óska L.A og samfélaginu til hamingju með sýninguna og þetta merka afmæli sem frumsýning númer 300 svo sannarlega er.
Ég mæli með Þögla þjóninum og gott væri að hafa tíma til að skella sér á kaffihús á eftir því sýningin kallar á skemmtilegt spjall og vangaveltur.
Júlíus Júlíusson
Matur og drykkur | Mánudagur, 18. október 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rocky Horror frumsýnt í Hofi föstudagskvöldið 10. september
Höfundur: Richard O´Brien´s. Þýðing: Veturliði Guðnason. Leikstjórn: JónGunnar Þórðarson. Leikmyndahönnun: Pétur Gautur Svavarsson. Búningahönnun:Rannveig Eva Karlsdóttir. Hljóðhönnun/stjórn Gunnar Sigurbjörnsson. Ljósahönnun: Freyr Vilhjálmsson. Tónlistarstjóri: Andrea Gylfadóttir. Dansahöfundur: Steinunn Ketilsdóttir. Gervahönnun: Sunna Björk Hreiðarsdóttir. Hárkollugerð: Kristín Thors.
Tæknileg ráðgjöf: Björn Bergsteinn og Einar Rúnar.
Þetta er mín fyrsta sýning á Rocky Horror þessum fræga og ótrúlega vinsæla söngleik, þó svo að ég þekki tónlistina að einhverju leiti. Ég ætla mér ekki að skrifa um verkið sem var frumsýnt 1973 og hefur m.a verið sýnt um 3000 sinnum á West End. Höfundurin Richard O´Brien var í æsku mikill áhugamaður um rokk, teiknimyndasögur, hrollvekjur og vísindaskáldskap. Verkið er súrrealískt og showið dásamlega fullkomið. Sýning L.A á Rocky Horror er eins og svert partý sem einhverjir hræðast, eru innst inni spenntir fyrir en enginn vill missa af.
Það er ljóst að það er búið að nostra við litríka, draumkennda og næstum fullkomna búninga, gervi, hárkollur og förðun. Þessir þættir undirstrika rokkshowstemmninguna. Dansarnir, fimleikarnir og lýsingin/ljósashowið fá hæstu einkun og bara það eitt er ástæða til að koma aftur og njóta. Leikmyndin stendur fyrir sínu, einföld en samt ekki. Ég hefði viljað sjá þetta glæsilega 200 fermetra svið notað betur og hafa sviðsmyndina örlítið viðameiri en þykist samt gera mér grein fyrir því að hraðinn, tólin, tæknibrellurnar, fimleikarnir og fleira óvænt sem ég ætla ekki að telja upp hamli því.
Með fullri virðingu fyrir öðrum hópum sem hafa stigið á svið hjá L.A þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að hópurinn í kringum þessa sýningu er einn sá allra kraftmesti. Allir skemmta sér og leikgleðin er mikil. Það eitt er ástæða til að tryggja sér miða strax, bæði til að missa alls ekki af og einnig til þess að geta farið aftur.
Ég hef það á tilfinningunni að Jón Gunnar Þórðarson frábær leikstjóri hafi gefið sig allan í þessa sýningu og að hann hafi náð að koma til skila mynd sem hann hefur haft í huga í upphafi, mynd af “Showi aldarinnar” Það eru nokkur atriði sem máttu njóta sín betur og hafa kannski með staðsetningar að gera. Ég ég er þess fullviss að þetta skrifast á örlítið frumsýningarstress, þetta slípast fljótt og leikarar setjast betur í hlutverkin og aðstæður.
Tónlistin í verkinu er í aðalhlutverki, flott, kraftmikil og eftirminnileg. Andrea Gylfadóttir þessi reynslumikli tónlistarmaður sér um tónlistarstjórn og ég get ekki annað en gefið henni “High five” . Hljómsveitina skipa: Árni Heiðar hljómborð og hljómsveitarstjórn, Halli Gulli trommur, Hallgrímur Jónas á gítar og Stefán Daði á bassa. Þeir eru frábærir og hafa greinilega gaman af þessu verkefni. Þétt spilamennska myndi þetta sennilega kallast á hljómsveitamáli og spilagleðin mikil. L.A hefur á að skipa góðum og reynslumiklum hljóðmanni Gunnari Sigurbjörnssyni og gerir hann vel og í raun betur heldur en húsið og aðstæður bjóða uppá að sinni. Þó að hljóðið hafi ekki verið fullkomið og ég hefi viljað meiri styrk í sumum lögunum þá skrifa ég það allt saman á fyrstu skrefin í nýju húsi með nýjar græjur.
Leikhópurinn er vel samsettur og það er nánast eins og að hver einasti þátttakandi sé sérsniðinn fyrir sitt hlutverk. Þetta eru flottir og kynþokkafullir leikarar/söngvarar sem geraallir mjög vel og sumir betur heldur en hlutverkin bjóða uppá. Danshópurinn/Kórinn er kröftugur og hefur greinilega gaman af hlutunum, syngur vel og leikur listir sem að hrein unun er að horfa á. Hið snúna, eftirsótta og áhugaverða hutverk Frank N Furter er í höndum Magnúsar Jónssonar og á köflum náði hann að gera dásamlega vel og það á bara eftir að verða betra. Eyþór Ingi sem leikur Riff Raff syngur og leikur af svo mikilli snilld að það hálfa væri nóg, í nokkur skipti tók salurinn dýfur yfir frábærum töktum hans. Atli Þór og Jana María sem Brad og Janet er sæt og saklaus að mestu. Þau skila sínu mjög vel og syngja eins og englar, Jana er frábær og sexy söng/leikkona og Atli kom mér á óvart með sínum söng. Bryndís og Andrea sem Magenta og Columbia eru eins og sniðnar í sín hlutverk sem hafa kannski ekki mikið uppá að bjóða í leik, en söngur þeirra og raddir eru eins og sérpantaðar fyrir “showið” Matti Matt leikur Eddie og er virkilega flottur, syngur og leikur eins og hann hafi aldrei gert annað. Það er eins og að Guðmundur Ólafsson sögumaður hafi fylgt með handritinu að utan, það er bara eins og að hann hafi alltaf verið þarna og aldrei gert neitt annað. Rocky leikur ungur og áhugaverður leikari Hjalti Rúnar Jónsson, flottur á sviði og gaman verður að fylgjast með honum í framtíðinni.
Það er nokkur atriði sem hægt er að setja út á. Flest ef ekki allt skrifa ég á frumsýninguna, örlítils óöryggis gætti á nokkrum stöðum, en allt á það eftir að slípast. Örlítið vantaði uppá að texti væri nógu skýr aðallega þegar sungið var , hugsanlega skrifast það á hljóðnemana sem notaðir eru. Mig grunar að æfingatíminn í Hofi hafi ekki verið nógu langur en eftir nokkra sýningar verður hljómburðurinn í húsinu orðinn enn betri og sýningin farin að rúlla og ég ætla mér að fara aftur og ég hlakka til.
Frumsýningargestir voru afar ánægðir með sýninguna miðað við viðbrögðin í lokin, klappinu, hrópunum, blístrinu og gleðinni ætlaði aldrei að linna.
Til hamingju allir þátttakendur í Rocky Horror, til hamingju L.A, til hamingju María leikhússtjóri í leikhúsinu með stóra hjartað og leikhúsinu sem þorir, til hamingju ágæti áhorfandi þú átt kost að að vera með……drífðu þig á eitt stærsta og kynþokkafyllsta “Show” sem lengi hefur sést …..þig gæti nefnilega langað aftur.
P.s. Hof er frábært hús og á eftir að gera meira fyrir norðlenska menningu og mannlíf heldur en jafnvel jákvæðustu menn þorðu að vona. M.a á húsið og starfsemi þess eftir að styrkja menninguna, ferðaþjónustuna, tónlistarlífið og veitingabransann á Akureyri. Þetta fer að sjálfsögðu eftir því hvernig spilað er úr hlutunum. Mikilvægt er að íbúarnir spili með og þeim sé gefinn kostur á því, þetta er hús fólksins. Það má finna nokkur atriði sem betur mættu fara en sennilega skrifast þau flest á byrjunarörðugleika, hitastig, hljómburður og fleiri tæknilegir hlutir sem að nýtt starfsfólk er að læra á. Ég vil nota tækifærið og óska Akureyringum já og norðlendingum öllum til hamingju með frábært menningarhús. Þó að það sé frábært að sitja í mjög góðum sætum Hofs þá saknaði ég þess að vera ekki að njóta leiklistar í gamla góða samkomuhúsinu, þar er hjarta leiklistar á Akureyri. Rocky Horror er stórt og dýrt verkefni og við erum heppin að fá að njóta slíks góðgætis hér norður við heimskautsbaug. Boltinn er því hjá fólkinu að mæta á og njóta fjölbreytilegra sýninga leikársins.
Takk fyrir mig - Júlíus Júlíusson
Matur og drykkur | Þriðjudagur, 14. september 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dag byrjaði ég að blogga á nýjum vef sem lofar afar góðu þetta er hið nýja, ferska og heilbrigða samfélag www.miðjan.is
Lesendur eru velkomnir á nýja heimilið http://juljul.midjan.is/ bíð spenntur eftir því að fá ykkur í heimsókn þar. Fyrsta færslan er um nýársgalaveislu á Friðriki V. Ég við þakka Moggabloggsmönnum fyrir góða tíma og lesendum mínum hér fyrir skemmtileg samskipti og vonast til að sem flestir kíki við á nýjum stað. Ég mun áfram setja hér inn innganga að færslum mínum á nýja staðnum, meðan að fastagestir ef svo má að orði komast eru að átta sig á breytingunum. Eins ætla ég smátt og smátt að færa efni héðan yfir á Miðjuna.
Ég þakka kærlega fyrir.
Matur og drykkur | Mánudagur, 25. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14 - 16 maí s.l var haldið æfingamót hér á Dalvík í sjóstangveiði fyrir Evrópumótið sem verður haldið hér að ári. Þetta verður svokallað tegundamót, ekki mokveiðimót. Hér á myndinni vinstra megin eru eikarbátarnir Níels Jónsson frá Haug
anesi, sem varð aflahæstur á æfingamótinu og Snorri frá Dalvík í hafnarmynninu rétt eftir að flautað var til leiks. Þar sem að þetta er tegundamót þá byrjuðu þeir að reyna við Marhnút og kola þar, sem að tókst því að einn lítill Marhnútur beit á agnið og nokkrir kolar. Það voru Skotar meðal keppenda og einn úr
þeirra hópi sigraði karlaflokkinn en Sigríður Kjartansdóttir sigraði kvennaflokkinn. Veðrið lék við keppendur báða keppnisdagana, en þess má geta að viku fyrr var hér brjáluð norðan stórhríð af verstu gerð. Úlfar Eysteinsson kokkur á Þremur Frökkum og Yfirkokkur Fiskidag
sins mikla var annar af tveimur bryggjustjórum mótsins, hann á hús á Siglufirði og þurfti að skreppa þangað með dót og ég skellti mér með honum. Við komum við í fiskbúðinni á Sigló og það var skemmtileg upplifun og ég upplifi mig pínulítið eins og ég væri í Genoa á Ítalíu. Fiskbúðin er í kjallara á gömlu húsi, lítil þröng , krúttle
g en skemmtileg aðstaða. Fyrst kemur þú inn þar sem að er afgreiðsluborð með ferskum fiski, hakki og fleiru, svo þröngur gangur og inn af honum lítið skot þar sem hægt er að setjast inn og snæða sviðkjamma og kartöflustöppu. Þar fyrir framan hanga síðan uppi um 20 kaffikönnur merktum ýmsum nöfnum, þarna eiga heppnir Siglfirðingar merkta kaffikönnu og droppa við í heimilislegri fiskbúðinni til að fá sér kaffi. Á myndinni hér til hliðar má sjá Úlfar og Ella Lúðubana sitja í matarskotinu góða.
S.l fimmtudag (Uppstigningardag) vorum við með matarmarkað á
pallinum hjá okkur. Við vorum með Sítrónusmjör, rauðlaukssultu, eplakanilssultu, chillilaukmarineringu, léttsaltaðan saltfisk, hnakka og sporða, Sushi, saltfiskrétt í eldföstum mótum sem fylgdu með, fiskisúpu, grill
pylsur Friðriks V.á Muurikka pönnu og fleira. Markaðurinn gekk alveg hreint ljómandi vel og það er ljóst að við verðum með fleiri markaði. Í dag laugardag kom loksins smá væta úr lofti ....gott fyrir gróðurinn og þá er líka gott að bardúsa innandyra og við nýttum okkur það fyrir næsta markað, við gerðum eina uppskrift af sítrónusmjörinu góða sem seldist upp á stuttum tíma á markaðinum o
g að auki nýja vöru grillaðar paprikur í hvítlauksolíu.
Matur og drykkur | Laugardagur, 23. maí 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Matur og drykkur | Laugardagur, 16. maí 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matur og drykkur | Þriðjudagur, 5. maí 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Matur og drykkur | Föstudagur, 17. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Matur og drykkur | Föstudagur, 17. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Matur og drykkur | Miðvikudagur, 15. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
- Matarmarkaðsstemmning, krúttleg fiskbúð á Sigló, og æfingamót...
- Ferming á faraldsfæti, kjammar í klípu, guðdómlegt konfekt og...
- Dásamlegt deig - Skemmtileg skinka - Krambúleraður kjúlli.
- Lundasalat á flugi......eyjapeyjar á þing....
- Camembert með beikoni og grískri jógurt
- Heill......og fallegur Humar...
- Örlítið um páskamatinn og ný matarsíða
- Aðventuboðsfærsla á deginum langa....loksins
- Skírdags kryddbrauðrasp
- Súpuskálar..smokkfiskur..sushi..saltfiskur og saumó
- Rússneskar pönnukökur og tengdó kom óvænt í heimsókn
Eldri færslur
2011
2010
2009
2008
2007
Jan. 2012
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 |
Greinar og skrif
Tenglar
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Effekt Þórhallur hönnuður
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Hellevad gengið Fimmtugi bróðirinn í DK
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Amma gamla á netinu Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
- Hornafjarðarhumar Uppskriftir
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Lárus Vilhjálmsson
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Elva Ýr Kristjánsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Hallgrímur Óskarsson
- Þórey Dögg Jónsdóttir
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Anna Ólafsdóttir (anno)
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Árni Björn Helgason
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Vala Dögg
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Brynja Svanhvít Lúðvíksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Hörður Hermann Valsson
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir



