Sól - Hiti - La Traviata - Grill og gleði

Aldeildis frábær helgi er liðinn - Fyrst ber að nefna geggjaða en ótrúlega blíðu alla helgina sem stendur enn, þannig að maður á erfitt með að vera inni og hvað þá að einbeita sér að því að gera eitthvað af viti... 20stiga hiti og sól...og logn...spegilsléttur fjörðurinn og allir með bros á vör. 

Fyrri partur helgarinnar - Góður félagsskapur, vinna og slökun og grill og örlítið af sólbrunaCool - já það er apríl. Gott dæmi um hvað svona dagar geta verið yndislegir, 7 ára sonur minn fór út að veiða flugur með vinum sínum kl rúmlega 9 á laugardagsmorguninn og kom ekki heim fyrr en farið var að grilla kl 18.00, ég kíkti á hann um miðjan daginn og spurði hvort að hann vildi ekki koma og fá eitthvað að borða....nei hann mátti ekki vera að því og var ekki svangur -  getur lífið verið betra fyrir svona gutta - frjálsir að fást við það sem þeir gleyma sér við og hafa gaman af...í gærmorgun reif hann sig á fætur eldsnemma, tók til nesti í tösku og var mest allan daginn við fluguveiðar í einstakri blíðu.

Í gær var mér boðið til Skagafjarðar að vera við opnun Sæluviku á Sauðárkróki og síðan á La Traviata í flutningi Skagfirsku Óperunnar í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Ég bauð tengdamömmu með mér og sagði við hana á leiðinni er við ókum í blíðunni og hitamælirinn í bílnum sýndi 22 gráður " hefðir þú trúað því í haust ef ég hefði sagt að ég ætlaði að bjóða þér á óperuna La Traviata í Varmahlíð og að auki í sól og 20 stiga hita í apríl ? " hefðir þú trúað því ?
Ég ætla að byrja á því að votta ykkur sem voruð ekki í Varmahlíð í gær samúð mínaFrown  Þetta var einstakur viðburður sem að mér skilst verður ekki endurtekin, aðeins þessi eina sýning. Á leiðinni heim í gærkvöldi sá ég margar gæsir á túnum og blettum  og var mér þá hugsað til allrar gæsahúðarinnar sem ég fékk í Íþróttahúsinu í Varmahlið í gær. Krafturinn, leikgleðin, innlifunin og innileikinn í þessari sýningu var þvílíkur að hrein unun var að horfa og hlusta á. Ég hafði ekki séð La Traviata áður, mér líkaði Óperan vel sem slík, Sinfóníuhljósmveit Norðurlands með snillinginn Guðmund Óla Gunnarsson við stjórnvölinn sló ekki feilpúst, þvílíkur munaður fyrir okkur hér á þessu svæði að eiga slíka hljómsveit. Óperukórinn var dásamlegur, einsöngvararnir góðir........en stjarna sýningarinnar var engin önnur en Alexandra Chernyshova, ekki nóg með það að hún söng og lék aðalhlutverkið af þvílíkri snilld ( Ég fæ gæsahúð núna er ég skrifa Þetta) að það hálfa væri nóg, hún var og er stórglæsileg kona og svo má ekki gleyma því að hún er kraftaverkakona með stórum stöfum. Að setja upp La Traviata með þessum hætti á þessum stað er eitthvað sem engin bjóst við að væri hægt eða yrði gert - en hún rak þetta áfram og árangurinn lét ekki á sér standa.
Til hamingju skagfirðingar að hafa fólk eins og Alexöndru og manninn hennar Jón Hilmarsson í byggðarlaginu, þvílíkur drifkraftur og bjartsýni - Svona á lífið að vera - Takk fyrir mig.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Heill og sæll og gleðilegt sumar til ykkar allra. Hér er sama dásemdar blíðan. Nú er ég komin í siðmenninguna og búin að skella mér í bloggheiminn. Síðan mín er enn svolítið hrá ennþá en velkominn að kíkja inn  Kærar kveðjur Solla á Stöddanum

Solveig Friðriksdóttir, 30.4.2007 kl. 12:48

2 Smámynd: Viðar Eggertsson

Ég er eldrauður, já eins og sundurskorin blóðappelsína, en það er ekki bruni eftir miskunnarlausa sólina, þó "Apríl sé grimmastur mánuða", eins og vinur minn T.S. Eliot sagði. Nei, ég er svona hrikalega afbrýðissamur!!!

Þú ert sá lukkunar pamfíll að hafa fengið að verða vitni að, og um leið þátttakandi, í ótrúlega ævintýralegum viðburði, sem þessi sýning kraftaverkakonunnar og allra hinna var á La Traviata. Viðburður, sem varði eina kvöldstund og verður aldrei aftur - og þú verður aldrei aftur sá sami!

Ég vildi að ég væri þú!

Viðar Eggertsson, 30.4.2007 kl. 13:53

3 Smámynd: Jónas Björgvin Antonsson

Mamma og pabbi skelltu sér norður í fyrradag (sunnudag) - fóru fram og til baka - í þeim tilgangi einum að fara á þessa sýningu. Þau staðfestu bæði þessa lýsingu þína á einstökum viðburði. Sögðu þetta hafa verið óviðjafnanlegt.

J#

Jónas Björgvin Antonsson, 1.5.2007 kl. 00:15

4 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Sólveig: Velkominn á bloggið...nú gerumst við bloggvinir.

Viðar: Góð færsla hjá þér

Jónas: Ég hitti foreldra þína og Egil bróðir þinn í Varmahlíð, það var ánægjulegt.

Júlíus Garðar Júlíusson, 1.5.2007 kl. 08:09

5 identicon

Dagurinn í dag
er dagurinn þinn..
Þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt.

 

Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt.

En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.

 A. Rosenbladt

Er þetta ekki málið - að skila einhverju í lífinu -fyrir alla hina og njóta einnig sjálfur með að gefa af sér til hinna.  Þá er maður hamingjusamur og gæsahúðunum fjölgar.  Gott mál :-)
Hjartagull !!

Hjartagull (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband