2 og 6

Mér finnst alveg merkilegt hvað tvær tölur 2 og 6 elta mig uppi eða fylgja mér.
Ég er fæddur 020266 - síminn er 4661022  - ég á heima í Karlsrauðatorgi 26  - póstnúmerið á Dalvík er 620 - Þegar ég bjó í Rvík  átti ég heima í Drápuhlíð 22  -  ég fór í búðina áðan og það kostað 622 krónur´ -  ég er með miða í höndunum frá fatahreinsuninni og á að ná í föt þangað í dag 22.  og miðinn er númer 1622 - í sðiustu viku fór ég inn í símann á Akureyri og fékk biðnúmer og það var númer 662.......og rétt í þessu var ég að taka upp póst frá Slow food samtökunum, þar sem ég var að fá skírteinið mitt og viti menn ég er íslenskur meðlimur númer 26.

Ég get haldið áfram þetta er bra svona það sem er núna - ég er að skoða lóð og hún er númer 20.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fimman eltir mig, f.5.apríl í húsi no. 5 os.frv. os.frv. ótrúlegt hvað tölur eru skemmtileg fyrirbæri

Ásdís Sigurðardóttir, 22.5.2007 kl. 14:51

2 identicon

Ég gladdist í hjarta mínu þegar ég heyrði þig segja í Kastljósinu að þú værir fæddur á Kyndilmessu - 2. feb. 

Ég er einnig fædd þennan dag, 020262, en sex og tveir hafa ekki verið að koma upp í kringum mig eins og hjá þér (semmtilegar tilviljanir) en þessar tölur eru mér mjög kærar og reyni ég yfirleitt að velja þær ef ég get.

Ég sendi þér hér uppáhalds ljóðið mitt en það segir meira ein heil bók. 

Takk fyrir alla góða lesningu á heimasíðu þinni og bloggi.

Dagurinn í dag
er dagurinn þinn..
Þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt.

 

Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt.

En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.

 A. Rosenbladt

Hjartagull (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 00:11

3 identicon

Þessi er einnig í miklu uppáhaldi: 

Gæt vel þessa dags.
Því gærdagurinn er draumur
og morgundagurinn hugboð
en þessi dagur í dag
sé honum vel varið
umbreytir hverjum gærdegi
í verðmæta minningu
og hverjum morgundegi
í vonarbjarma.
Gæt þú því vel þessa dags.

Hjartagull (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband