Styttist í stuðningsmyndbandið

Stuðningsmyndbandið er enn í klippingu og verið að fínisera það......kannski kemur það í kvöld en pott þétt á morgun. Það er snillingurinn Gummi Pálma sem situr sveittur við makkann og klippir og lagar þetta allt saman til.

Ég fer í viðtal á Rás 2 hjá Gesti Einari í fyrramálið klukkan 8.30. Samfélagið í nærmynd verður sent út frá Dalvík á miðvikudagsmorguinn og þann sama morgunn mun elskan hún Margrét Blöndal taka upp innskot í Kastljós miðvkudagskvöldsins...nánar um það síðar.

Ég mun setja dagskrá Eurovisonþorpsins hér inn á morgun seinnipart eða annað kvöld, þar er margt í boði...fylgist með.

En aðalmálið er að okkar fólk í Serbíu er að standa sig vel og okkur skilst að Friðrik Ómar og Regína Ósk séu landi og þjóð til mikils sóma og séu mjög dugleg. Það er ein mitt það sem skiptir máli og þá er hálfur sigur unninn.

P.s Prik til ykkar allra sem hafið commentað og sent kveðjur á ýmsan máta....Áfram Ísland.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Áfram Ísland

Jónína Dúadóttir, 20.5.2008 kl. 06:05

2 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Eg hef óvenju lítið fylgst með júróvísíjón þetta árið. Hef ekki einu sinni heyrt hin lögin. Eg þarf augljóslega að öppdeita mig. Er ísland í kvöld eða á fimmtudag?

Ylfa Mist Helgadóttir, 20.5.2008 kl. 08:45

3 Smámynd: Sverrir Þorleifsson

fimmtudag

Sverrir Þorleifsson, 20.5.2008 kl. 09:04

4 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Flott hjá Dalvíkingum að styðja sinn mann. Við gerum það auðvitað öll hérna heima. Er ekki í vafa um að við verðum stolt af þeirra framgöngu. Allar myndklippurnar og kynningin úti sýnir hvað þau eru pró í þessu. Verður flott stemmning á fimmtudag. :)

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 20.5.2008 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband