Áhugamaðurinn gefur sleifar - Krua Siam

100_0643Í gærkvöldi fórum við hjónin í leikhús í Rýmið hjá LA til þess að sjá Dauðasyndirnar, algjör snilld sem ég segi frá síðar. Við ákváðum að fá okkur eitthvað létt að borða á undan og fyrir valinu varð Krua Siam tælenskur staður við Strandgötuna á Akureyri. Það hafa margir staðir verið til húsa þarna, en þennan höfum við ekki komið á. Staðurinn er með heimsendingu á mat og einnig er hægt að sækja, þannig að það var töluvert af fólki á ferðinni og starfsfólk að svara í símann, en þetta er bara þannig staður. Matseðillinn er fjölbreyttur og verð nokkuð gott, matseðillinn sjálfur mætti vera vandaðri, myndir frekar óskírar og verðin handskrifuð á límmiða yfir myndina...en kannski er þetta bara heimilislegt.100_0646Við vorum boðin velkomin á hlýlegan máta og þjónustan var ljómandi góð. Við tókum sitt hvorn réttinn og rauðvínsglas með (2 litlar Lindemans flöskur ) sem hæfði vel. Ég fékk mér Satay svínakjöt á pinnum og Gréta fékk sér kjúkling með Cashew hnetum og grænmeti, með báðum réttum fylgdi diskur með hrísgrjónum og örlitlu af rifnum gulrótum og hvítkáli. Báðir réttir voru afar bragðgóðir og ljóst að það eru kunnáttumenn í eldhúsinu. Þetta kostaði fyrir okkur bæði með víni 4600 kr sem verður að teljast hagstætt eða hvað ? Krua Siam fær
sleif sleif sleif og 1/2 sleif.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ummm hvað þetta virkar spennandi.  Verð að kíkja þarna næst þegar ég verð á ferð. Gott verðlag.  Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 27.9.2008 kl. 21:59

2 identicon

Þetta er uppáhaldsstaður fjölskyldunnar. Við pöntum okkur mat frá þeim ekki sjaldnar en einu sinni í viku. erum búin að komast að því að það er ódýrara en að fylla einn poka í Hagkaup með hráefni í svona mat. Við eigum okkur tvo sérstaka uppáhaldsrétti, fiskrétt (sem mig minnir að sé nr. 39 á matseðlinum). Hann er djúpsteiktur en bara með örþunnu lagi af djúpsteikingardeigi. Sósan er með rauðu karrýi og kryddjurtum sem eru ótrúlega bragðgóðar. Hinn rétturinn er kjúklingur eða nautakjöt (maður getur valið kjöttegund) með panang karrýi og kókos. Þetta er þvílíkt nammi að það hálfa væri nóg.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 15:35

3 identicon

Ég hef borðað á mörgum tælenskum veitingastöðum út um allan heim en að mínu mati er þetta einn sá besti sem ég hef komið á. Staðurinn sjálfur finnst mér ekkert spes.En hann er hreinn og heimilislegur. En það er svo góður maturinn þarna að þegar ég flutti til Danmerkur þá bauð ég kokkinum að skilja við manninn minn til að fá hann með mér :) Uppáhaldssúpan mín í öllum heiminum er Tom kha khai súpan þarna. Hún er jafn góð fyrir sálina og hún er fyrir magann. Ég fæ bara vatn í munninn á að hugsa um hana. Það verður það fyrsta sem ég fæ mér þegar ég kem til mömmu um jólin. Ég mun bruna beinustu leið inneftir :) En annars vildi ég bara segja,skemmtileg síða og hafið það sem allra best. Kærar kveðjur til Grétu.

Ella Rósa (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 09:35

4 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Tek heilshugar undir þetta Júlli. Fínn staður og maturinn svo sannarlega ljúffengur. Hef góða reynslu af honum og kaupi oft mat þar.

Gaman að lesa vefinn þinn. Fínar uppskriftir og góð skrif um mat.

mbk. Stebbi

Stefán Friðrik Stefánsson, 30.9.2008 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband