Knús á línuna...Risa SMS knús

Þó svo að ég hafi breytt bloggi mínu að mestu í matarblogg þá finn ég stundum fyrir þörf að tjá mig um eitthvað annað og nú finn ég þörf til að leggja mitt af mörkum til þess að taka þátt í að benda fólki á að láta ekki hugfallast vera jákvæð. Versta við þessa stöðu í þjóðfélaginu er að ef við látum reiði, pirring og neikvæðni ná tökum á okkur og það megum við ekki gera. Ég geri mér grein fyrir að staða margra er ekki góð en ég veit ekki til þess að nokkur maður hafi grætt nokkuð á því að vera neikvæður og tala stanslaust um hve ástandið er slæmt. Við VERÐUM að vera jákvæð, hugsa jákvætt og senda út jákvæðar hugsanir. Því fleiri sem hugsa og tala neikvætt því verra verður ástandið. Eitt sinn sagði einhver góður maður " Verið af hjarta þakklát hvern dag, það er eina leiðin til velsældar"
Notum orku dagsins í að hugsa jákvætt og setjum okkur markmið að gefa t.d fimm knús í dag og kannski senda vinum, samstarfsmönnum, ættingjum eða bara öllum í símanum Knús SMS sem gæti hljómað svona "  Þetta er Risa SMS knús til þín láttu það ganga, knúsaðu einhvern í dag og þú munt verða knúsuð/aður og allir verða ríkir...af knúsum" Það eru margir sem þurfa pepp og að það sé tekið utan um þá, tökum þátt í því og allt verður miklu betra.

 


mbl.is Ekki lengur hætta á þjóðargjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Innilega sammála og risaknús á þig

Jónína Dúadóttir, 8.10.2008 kl. 09:39

2 Smámynd: Brynja skordal

sammála Risaknús á móti

Brynja skordal, 8.10.2008 kl. 09:48

3 Smámynd: Anna Guðný

Ég er svo algjörlega róleg yfir þessu og ætla að halda því áfram

Ætla að senda af stað risaknús í sms í dag. Og knúsa svo einvherja sem ég hitti

Knús á þig

Anna Guðný , 8.10.2008 kl. 11:17

4 identicon

:) frábært búin að senda nokkur sms :) hehehe nú verð ég rík af knúsum :)

Knús á ykkur öll :)

AS (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 11:37

5 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk fyrir þetta innlegg þetta róaði aðeins huga minn, get alveg sagt þér það og risa knús á þig til baka.

Guðborg Eyjólfsdóttir, 8.10.2008 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband