Til umhugsunar

Til umhugsunar í rokinu.

Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts.
Þú þarft ekki að  svara spurningunum. Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:
 
1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á síðasta ári.
 Hvernig gekk þér? 

Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins. Þetta eru ekki annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.En klappið deyr út.Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og skírteinin eru grafin með eigendum sínum. Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær: 
1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.  
Auðveldara?
 
Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir, sem hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin. Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli. Hafðu ekki áhyggjur af því, að heimurinn sé að farast í dag. Það er nú þegarmorgun í Ástralíu. (Charles Schultz)     

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Nákvæmlega

Ragnhildur Jónsdóttir, 4.9.2007 kl. 16:28

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Svo satt

Jónína Dúadóttir, 4.9.2007 kl. 18:11

3 identicon

mál í tímans tölu.... eða þú veist... mjög miklvægt að minna alla á þetta mjög reglulega... gæti eiginlega verið efni í svona segul á ísskáp þannig að maður læsi þetta á hverjum degi...

Jenný (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 20:30

4 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Mikið rétt, en er ekki gærmorgun í Ástralíu  ..

Hólmgeir Karlsson, 5.9.2007 kl. 23:06

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þetta var aldeilis fín mjólkurfernu heimspeki.

S.

Steingrímur Helgason, 11.9.2007 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband