Er þetta frétt ?

Ég er þess fullviss að Einar Bárðarson myndi ekki velja fimm stráka í í hljómsveit sem gætu ekki sungið bara ef þeir væru synir þekkts fólks. Þessir krakkar eru í þessari mynd og öðrum eru þar vegna hæfileikanna og við eigum öll eftir að fá að njóta þess að horfa á sömu einstaklinga jafnt á sviði, hvíta tjaldinu eða annarsstaðar og verða stolt af þeim. Skrýtin frétt. Ég er spenntur fyrir myndinni og gaman að við á Íslandi séum að frumsýna nýja mynd þegar það er svo stutt frá því að snilldin "Astrópia" leit dagsins ljós.....Áfram Ísland.


mbl.is Börn þekktra Íslendinga áberandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Sammála þér Júlli að þetta er svolítið skrítin frétt. Það má jafnvel lesa milli línanna að verið sé að ýja að því að þau séu þarna vegna hæfileika og afreka foreldranna. Ætli ástæðan sé nú ekki meira sú að áhugi þeirra haf beint þeim á svipaða braut og foreldranna og þau einfaldlega að standa sig vel.

Bara svona til samanburðar. Hefði einhver skrifað frétt um búfræðinga sem hefðu verið að ná góðum árangri eitthvað á þessa leið "Einkennilegt hve margir þeirra eru bændasynir eða dætur" ... !?

Metum einstaklingana útfrá verkum þeirra sjálfra. Ég hef fulla trú á að þessir einstaklingar sé þarna vegna sinna eigin verðleika :)

Hólmgeir Karlsson, 6.9.2007 kl. 22:30

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi, ég ætlaði að segja nokkurnveginn þetta sama, en læt mér nægja að segja : Sammála síðasta ræðumanni, vel orðað

Jónína Dúadóttir, 7.9.2007 kl. 07:57

3 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Hallærisleg frétt. Það er allt og sumt!

Ylfa Mist Helgadóttir, 11.9.2007 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband