Knúsum bretana

Það sem þurfum engan veginn á að halda þessa dagana eru illdeilur við (vina) þjóðir, nóg er nú álagið á íslenskuþjóðinni þó að við bætum ekki þessu við. Það eru einnig margir einstaklingar og fyrirtæki sem eiga mikið undir í viðskipta og vinasamböndum við breta sem geta verið í hættu, látum ekki reiði og neikvæðni ná tökum á okkur og hugsum vel um hvað sagt er....heimurinn fylgist með öllu og orð eru dýr. S.l daga hef ég kvatt fólk til að knúsast og vera nærgætið við hvert annað, það er okkar vopn og þó að það hljómi svona á prenti sem máttlítið gegn þessum myrku og ofurstóru peningaöflum þá er það ekki svo, knús skiptir máli. Mér fannst frábært að sjá starfsfólk Glitnis í hádeginu í gær og ég veit til þess að það gaf bæði því fólki og mörgum sem horfðu á mikið.
Knúsum bretana og sendum þau jákvæðu skilaboð til heimspressunnar hvernig þjóð við erum, með knúsi getum við endurheimt jákvæða ímynd og hugsanlega töpuð vina (Viðskiptasambönd) Ég ætla að halda áfram hvetja ykkur til að senda sms knúsið sem ég byrjaði á í vikunni það hefur farið víða en betur má ef duga skal og það er aldrei of mikið af knúsi. Notum orku dagsins í að hugsa jákvætt og setjum okkur markmið að gefa t.d fimm knús í dag og kannski senda vinum, samstarfsmönnum, ættingjum eða bara öllum í símanum Knús SMS sem gæti hljómað svona "  Þetta er Risa SMS knús til þín láttu það ganga, knúsaðu einhvern í dag og þú munt verða knúsuð/aður og allir verða ríkir...af knúsum"


mbl.is Viðræður við sendinefnd Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 11.10.2008 kl. 10:28

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Þú er nú bara frábær

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 11.10.2008 kl. 10:37

3 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Júlli..þú ert algjör snillingur...!

Það er sko hægt að sigrast á ÖLLU með jákvæðni og knúsi...ekki nokkur spurning!!!

Og ekki gleyma að hlæja!!

Bergljót Hreinsdóttir, 11.10.2008 kl. 12:30

4 Smámynd: Líney

Ég fékk  svona sms knús frá Dallas city í sl. viku,nú veit ég hver er upphafsmaður þess,eigðu góðan dag (((((KNÚS))))))

Líney, 11.10.2008 kl. 14:00

5 identicon

Auðvitað! Nýtt upphaf, nýjir tímar => nýjar aðferðir!

Góðar kveðjur norður!
H.

Hallgrímur Óskarsson (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 21:01

6 identicon

Júlíus lestu bókina , tíu þorskastríð frá 1415 til 1976 og reyndu svo ekki að kalla Breta vinni okkar, þeir eru ekki þessi virði að við semjum við þá um eitt eða neitt,þessir peningar sem þeir tappa eru greiðslur fyrir fiskinn sem þeir hafa tekkið með valdi við Íslandsstrendur um árinn og svo hernámu þeir okkur í stríðinu kv Adolf sem mundi senda Davíð knús, fyrir að sendaa þeim tóninn

ADOLF (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 09:22

7 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sammála Adolf og að sumu leyti þér Júlíus.

Það eru bara fáir jafn þroskaðir og þú og komnir svona langt í sorgar- og reiðiferlinu.

Fyrst þarf að fara fram uppgjör: persónulegt uppgjör hjá fólki við græðgivæðinguna, sem við flest gerðum okkur sök um að taka þátt í og síðan uppgjör stjórnmálaflokka (Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn, Samfylking ekki VG) og að auðvitað uppgjör eftirlitsstofnana og Seðlabankans.

Síðan skulum við fyrirgefa. Það verður að gera upp málin, því annars eru þau bara áfram í skottinu hjá manni.

Við getum og eigum að knúsa hvort annað núna, en eigum við ekki að gera upp málin við okkur sjálf í leiðinni og leyfa öðrum að gera það einnig, t.d. Bretum, áður en við knúsum þá.

Það er munur á að knúsa þjóðir eða einhverja, sem maður hélt að væru vinir sínir eða átta sig á því hvernig þær eru og forðast þá í framtíðinni.

Eigum við kannski að knúsa Jón Ásgeir og Björgúlf og Sigurð Einarsson og Karl Wernersson o.s.frv.

Ég er bara ekki til í að knúsa alla ennþá - kannski kemur það?

Guðbjörn Guðbjörnsson, 12.10.2008 kl. 09:47

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Stórt knús á þig Júlli minn og ykkur öll familíuna

Ragnhildur Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 17:08

9 identicon

Veistu hvað? Allir sem ég hef spjallað við um þetta, hver einn og einasti, eru ánægðir með hrunið og kreppuna. Þó þeir hafi margir tapað peningum sem þeir máttu eiginlega ekki missa og jafnvel atvinnunni. Ég er alltaf að finna betur og betur hvað menn voru orðnir þreyttir á "góðærinu", græðgisvæðingunni og peningabrjálæðinu. Hvort sem þeir voru að taka þátt í því eða ekki.

Svo ég held það sé bara full ástæða til bjartsýni og hún sé að koma mikið af sjálfri sér. Eða það heyrist mér á fólki. Það er bara ekki í tísku að vera með svoleiðis gleðihjal í fjölmiðlum. Svo er líka eins og menn hafi hljótt um þennan fögnuð yfir breyttum tímum af ótta við að einhverjir aðrir séu í rusli yfir þessu. En ég fer að halda að þeir séu bara... fáir.

Sigga Lára (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband