Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Cool skyrlosti landbúnaðarráðherrans.

001031bLandbúnaðurinn er heldur betur í fréttunum núna, þessi magnaða hönnunarsýning Listaháskólans, bændasamtökin taka af skarið í klámbransanum og síðan er Guðni allur að koma til. Á forsíðu Fréttablaðsins í gær matar Guðni landbúnaðarráðherra einn af kokkum Food and Fun með skyri á lostafullan hátt og ekki nóg með það á forsíðu blaðsins í gær fer Guðni næstum því yfir lostastrikið er hann sleikir skyr (Veit ekki hvaða tegund) úr lítilli skeið á afar xxxxxx hátt...og ekki má gleyma svipnum á honum. Útgefendur Bleikt og Blátt ættu að huga að þessu nýja matarlostamódeliWhistling.  Ef þið hafið ekki séð Blaðið í gær, verðið ykkur þá út um eitt. Ég veit ekki hvað Morgunblaðið var að hugsa í gær, engin "Skyrlostamynd á forsíðu. Kannski var það Guðni sem hafði áhrif á bændasamfélagið á Hótel Sögu er þeir skelltu í lás fyrir "Klám heimsókninni miklu"  hann hefur óttast samkeppnina við lostafullu skyrréttina. Þar gerði hann mistök því að klámhópurinn hefði verið góður markhópur, þeir hefðu getað makað á sig skyri upp á jökli með fyrsögninni "Cool Skyr "


mbl.is Skyrkonfekt og lostavekjandi geitamjólkurdrykkur afrakstur matarhönnuða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er þegar þrennt er

Ja hérna...nú skulum við vona að þetta komi hjá stelpugreyinu...smá bjartsýni fyrir helginaJoyful  "Allt er þegar þrennt er"
mbl.is Britney sögð hafa skráð sig í meðferð í þriðja sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveikjum á kerti í kvöld kl 20 - Stöndum saman

candle-down 

Kveikjum öll á kerti kl 20.00 í kvöld fimmtudaginn 22. febrúar og gefum okkur stund til að hugsa til hennar Ástu Lovísu og biðja fyrir henni.  Hún er einstæð 30 ára, þriggja barna móðir með krabbamein.
Bentu vinum þínum á þessa beiðni.

Bloggsíða Ástu Lovísu

Fyrirbænasíða


2 flugur í einu höggi.

Kaupum hann til landsins og notum hann í auglýsingaskyni. Hann kæmi örugglega að gagni í tveimur herferðum þ.e.a.s borðum meiri fisk og notum smokkinn = bæði hollt og gott.Cool


mbl.is Veiddu 450 kílóa smokkfisk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

50% segja nei takk!

Það er mikið skrifað og skrafað um klámþing sem fyrirhugað er að halda hér á landi. Einhverjir eru á móti  aðrir með og ótrúlega mörgum er sama. Sumir eru á móti klámi almennt, aðrir á móti klámþingi, enn aðrir á móti því að klámefni sé framleitt hér. Eins og ég hef áður komið að þá finnst mér það ekki gott fyrir ýmind landsins að slíkt þing sé haldið hér, en eins og margir hafa bent á þá er erfitt að banna þessum að koma en ekki þessum og það er mikið rétt. Ég spurði í skoðanakönnun hér á bloggsíðu minni "Á að halda klámþing á Íslandi ? " 50% sögðu nei  takk - 29,2% var alveg sama - og 20,8 sögðu já takk. Áhugaverðar tölur eða hvað ? Oft er spurt þegar fátt er um svör Shocking     


mbl.is Klámframleiðendur óvelkomnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hola í höggi

Ég er nú alls ekki Liverpool maður en þetta var góður sigur hjá þeim í gær gegn Barcelona. Þetta var í raun tvöfaldur sigur því að þarna leistu þeir deilumál fra helginni ef svo má að orði komast. Þeir golffélagar Bellamy Riise skoruðu mörkin. Þetta var gott kvöld fyrir Púllara til hamingju með það....þetta var svo sannarlega hola í höggi. En þess ber að geta að Barcelona vinnur á Anfield....og Barcelona fer áfram.
mbl.is Frækinn sigur Liverpool á Camp Nou
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hristur Malibu

riegger-529560-malibu Ég er ekki hissa að hún hafi ekki þolað við á þessari stofnun sem er í
" Malibu"........æji maður verður að taka þátt í Britneybloggi.
mbl.is Britney sögð hafa staldrað stutt við á meðferðarstofnun í Malibu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú þegir þlutina þvona.

Er Þollur þauðbrandhuupóttur eða þauðbrandsokkóttur...þeir þafa þallir þverið þvullir þarna. Þið þvitið það ef þið erð þvull þá þegið þið þlutina þvona.Sideways .....og af því að maður er byrjaður að reyna að vera fyndinnSleeping er best að láta einn eða tvo fylgja með þessu fyllerísröfli hér að ofan.

Svo var það kerlingin og karlinn sem fóru til London, gistu á hóteli. Ekki voru þau sátt við að það væru engir krókar fyrir handklæði á baðinu. Kerlingin kunni lítið í engilsaxnesku en drakk í sig kjark til þess að fara að spyrja hvort að þau mættu skrúfa upp króka á baðinu. Hún fer í lobbýið...Hello ken æ tokk tú ðe hotel djanitor plís ? Yes Wait a moment....Þeinkjú...svo kemur Djanitorinn...Hello...Jess æ was wondering iff its okei for mæ hösband tú skrú som húkkers in ár baþrúmGrin

Að lokum vitið þið hvað Saddam sagði við bróðir sinn ?  ...verðum í bandiWhistling


mbl.is Er Þollur rauðbrandhuppóttur eða rauðbrandsokkóttur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði.

Í dag er Öskudagurinn sem hefur ekki farið fram hjá mörgum. Í þessari frétt Morgunblaðsins er talað um að þessi dagur sé að marga mati martröð verslunareigenda. Það er leiðinlegt fyrir börnin að heyra þennan neikvæða tón í henni. Þetta er skemmtileg tilbreyting og allir ættu að fara með bros á vör til vinnu í dag og sérstaklega verslunareigendur því að á slíkum degi geta þeir goldið börnunum fyrir viðskiptin, því það er nú æði oft sem þau stjórna eða hafa áhrif á innkaupin. Ég er búinn að fylgja sönghóp hér á Dalvík í morgun og það er áðdáunarvert hver vel er tekið á móti þeim, nokkur fyrirtæki t.d í fiskvinnslunni eru með reglu fyrir hádegi að stöðva vinnu á meðan krakkar eru í heimsókn, á einum stað var búið að setja upp algenga fiska á ís í kari og krökkunum kennd heitin á þeim, á öðrum stað var búið að setja upp söngpall og sérstakir starfsmenn að fylgjast með. Fyrir sönginn voru börnin að fá harðfisk, nammi, Jójó, blöðrur, myndir af sér og fleira og fleira allt vel undirbúið. Vert er að minnast á frábært framtak Blikkvers á Akureyri þar sem Oddur Helgi Halldórsson og félagar eru með söngkeppni sem er mjög vinsæl. Þetta er dagur barnanna, frábær dagur og allir, verslunareigendur jafnt sem aðrir ættu að vera með bros á vör í dag......Ég á ekki von á öðru en að svo sé í flestum tilfellum og því segi ég að það sé kjaftæði að dagurinn sé einhver martröð...Áfram Öskudagurinn.


mbl.is Silvía Nótt hvergi sjáanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var nokkur barinn með golfkylfu ?

Humor1 Auðvitað var þetta löglegt mark....Og sem betur fer var enginn í golf hugleiðingum...þá hefði kannski þurft  að athuga með hvort að þetta væri allt saman löglegt eða ekki...... eða siðlaust.
mbl.is Ferguson: Þetta var löglegt mark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband