Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Fjörið heldur áfram

Fjörið heldur áfram í Eurovisionþorpinu - Kappinn mættur heim.
Friðrik Ómar þakkar Dalvíkingum stuðninginn. Hann verður í blíðunni fyrir framan Sparisjóð Svarfdæla á Dalvík á morgun miðvikudag  kl 15.00. Áritar veggpsjöld fyrir börnin og tekur nokkur lög. Allir velkomnir.


Mikið rooooosssalega var gaman

Gærdagurinn var aldeilis frábær, þvílikt stuð og þvílík gleði. Frábær endir á dagskránni hjá okkur hér í Eurovisonþorpinu...þó er kannski ekki hægt að segja að þetta sé búið því í skeyti frá Friðrik Ómari sagði hann okkur að hann ætlaði að mæta til Dalvíkur n.k miðvikudag og þakka fyrir stuðninginn héðan. Þau voru flott á sviðinu í gær og til mikils sóma allan tímann sem þau voru í Serbíu. Við fengum tvö partý, lentum ekki í 16. sæti og unnum svíana...það var nú aldeilis gott.Tounge

Við erum bjartsýn á að á næsta ári verðum við aftur með Eurovisonþorp, því mér segir svo hugur að Matti Matt sé næstur.....Áfram Ísland.

Njótið dagsins....og fyrir þá sem voru hér á Dalvíkinni í gær, heimamenn, brottfluttir eða ferðamenn vil ég segja " TAKK FYRIR SKEMMTUNINA"


Poj poj...sendum jákvæðu orku

Góðan daginn úr Eurovisionþorpinu DalvíkSmile

Þetta er bjartur og góður dagur. Nú þurfum við íslendingar að safna jákvæðri orku og senda til íslenska hópsins og út um alla Evrópu, við förum langt á kraftinum, jákvæðu orkunni og fallegu brosi. Ég er viss um að við eigum afar skemmtilegt kvöld framundan með óvæntu yfirbragði. Njótið dagsins og kvöldsins og munið að vera góð við hvert annað.

Áfram Ísland - Áfram Eurovison - Áfram íslendingar - Áfram þú......poj poj til Serbíu.


mbl.is „Getum alveg unnið þetta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er komið að lokaspánni

Vááá hvað þau voru flott, örugg, jákvæð og fagmannleg Friðrik Ómar og Regína í gærkvöldi.
´
Ég spáði fyrir lokakvöldinu þann 14 maí hér neðar á blogginu. Ég fór yfir keppnirnar í gær á www.eurovison.tv  og ætla leyfa mér að koma með lokaspá fyrir morgundaginn. Spá mína byggi ég á ýmsu m.a annars gleði, orku og krafti keppenda. Hér er spá mín og ég stend við hana á sama hátt og fyrri spá mína um Ísland Wink...umslag númer 4 og Ísland áfram.

1. sæti ....(Og haldið ykkur nú) Ísland...Friðrik og Regína eru Euroviosnmanneskju í grunninn og hafa alla tíð stefnt á þetta. Friðrik Ómar er þannig að hann gerir það sem hann ætlar sér og nú verður hann að toppa besta árangur Íslands....2 sætið og það mun hann gera.

2. sæti Serbía

3. sæti Armenía

4. sæti Rússland

5. sæti Noregur

6. sæti Portúgal

7. sæti Finnland

8. sæti Lettland

9. sæti Svíþjóð

10 sæti Georgía

Mér finnst sjálfum lög eins og Danmörk, Bosnía og Úkraína góð en þau ná ekki í gegn að þessu sinni, þetta er spá mín en ekki uppáhaldslög. Ég sakna þess að Búlgaría og Slóvenía fóru ekki áfram.

Ég mun að öllum líkindum hafa rangt fyrir mér með Svíþjóð....en ég get bara ekki spáð hennig eða því lagi hærra...sorry.

Á morgun verður líf og fjör...verið góð við hvert annað og gangið hægt um gleðinnar dyr...en gangið endilega um þær. Knús á línuna og takk fyrir öll smsin, commentin, emailin og kveðjurnar.

 


Sjáið hvernig ég bloggaði í morgun..

Þetta er dásamlegt......Áfram Ísland....

Ég bloggaði þetta HÉR eldsnemma í morgunWink .....ísland yrði í umslagi númer fjögur.

Farið varlega inn í nóttina og hvílið ykkur fyrir helgina

mbl.is Ísland áfram í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú söfnum við jákvæðri orku

Hátíð í bæ....ég er mjög bjartsýnn fyrir kvöldið, bjartsýnn á að okkar fólk muni standa sig vel í alla staði og bjartsýnn eða sannfærður um að við komumst áfram og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að við verðum lesin upp númer fjögurGrin

Nú skiptir máli að þjóðin standi þétt saman og sendi jákvæða strauma til þeirra og til fólksins í Evrópu sem kemur til með að kjósa...tökum öll þátt í því og það mun skipta máli....það verður gaman í kvöld...og á laugardaginn.

Hér í Eurovisonþorpinu Dalvík, er verið að skreyta, nú sé ég að það er verið að flagga íslensku fánunum á ljósastaurastatívin. Það eru konar myndir í glugga og fleira.

Minni alla hér á svæðinu á skrúðgönguna klukkan 18.00 frá Ráðhúsinu....

Við erum búin að fá skemmtileg viðbrögð við stuðningsmyndbandinu og nú í morgunsárið hafa 1830 manns horft á það á youtube.

Njótið dagsins - Njótið stundarinnar - Notum tækifærið og gleðjumst saman - 'Afram Ísland


mbl.is Þrjár mínútur til þess að slá í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt slóð á stuðningsmyndbandið...spennan magnast.

Í drefibréfinu sem var sent út í öll hús í Dalvíkurbyggð var slóðin á Youtube síðuna með stuðningsmyndbandinu vitlaus - Minni aftur á þessa réttu HÉR. Munið að velja Whats in high quality

Áfram Ísland - Áfram Eurobandið - Áfram Regína ósk - Áfram Friðrik Ómar
mbl.is Eurovisionhátíð á Dalvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sáttur við mína spá og úrslitin

Góðan daginn...spennan magnast...sólin skín.

Fyrri undankeppnin að baki og var skemmtileg og góð upphitun.

14. maí spáði ég HÉR á blogginu mínu  er bara mjög sáttur 8 lönd rétt, ég spáði Andorra og Slóveníu áfram en ekki Ísrael og Rúmeníu. Ég var alveg viss með að Finnland kæmist áfram og alveg viss að Írland kæmist ekki og er ánægður með að hafa rétt fyrir mér með það. Ég vona að ég standi mig enn betur á morgun...Áfram Ísland.

En nú er stuðningsmyndbandið komið inn STUÐNINGSMYNDBAND  Fan Videeo og veljið Whats in high quality.

 


Gróf dagskrá í Eurovisionþorpinu.

Hér er gróf dagskrá Eurovisionþorpsins, hún verður borin í öll hús í Dalvíkurbyggð ásamt getraunaseðli fyrir fimmtudagskvöldið.

Eurovision þorpið Dalvík - 10 ára afmæli Dalvíkurbyggðar
Dagskrá  - Tökum þátt, gleðjumst saman og styðjum okkar fólk

Við hvetjum alla til að.
Skreyta, setja stuðningskilti eða myndir út í glugga, flagga á fimmtudeginum.
Hægt er að nálgast blöðrur eftir hádegi á fimmtudag í verslunum og fl. stöðum.

Eurovision tilboð.
Húsasmiðjunni.
Íslenskur fáni á 99 kr meðan birgðir endast.
Olís. Hamborgarafjölskyldutilboð með coke - 2 l coke og flögur - Ís úr vél og fleira.
Frír Candyflos í boði Olís við Olís milli kl 16 0g 18.
 Samkaup Úrval. ATH. Lokum 18.30 fimmtudaginn 22.mai
Góa Bitar Hraun /Æði 169.-  50% afsláttur af nammibar fimmtudag föstud og laugardag
Sprite/Sprite zero 99.-  Stjörnusnakk Papriku og Ostastjörnur 149.-  Ásamt mörgum öðrum tilboðum og nýi Eurobandsdiskurinn er kominn.

Fimmtudagur 22. maí. - Flaggað í byggðarlaginu
16.00 Candyflos í boði Olís - Eurovisionþorps og 10 ára afmælisblöðrum dreift.
18.00 Fjölskylduskrúðganga frá Ráðhúsi að íþróttahúsi. - Listamenn Díónýsíu taka þátt. Mætum með fána , veifur, hatta og skraut. Skrúðgangan verður tekin upp.
19.00 Keppnin á skjá í íþróttahúsinu- heppnir fá diska Eurobandsins og árituð veggpsjöld
Pizzur til sölu á staðnum - Getraunir -  Videoblogg frá Friðrik Ómari sýnt.
Þetta kvöld er í boði Félagsmiðstöðvar, Stuðningshóps og Sparisjóðs Svarfdæla

Föstudagur
23. maí
23.30
Upphitunarkvöld á Bakaríinu - DJ Hulio með nýju og gömlu Eurovision lögin.

Laugardagur 24. maí - Flaggað.
11.00 - 14.00
Vorhátíð í Dalvíkurskóla - Allir velkomnir.
14.00 Dalvík/Reynir - Leiknir knattspyrnuleikur.
18.00 Eurovision gleði út um allan bæ - heimahúsum og sölum
19.00 Keppnin í Íþróttahúsinu á Risaskjá - Vímulaus fjölskylduskemmtun.
23.00 Eurovision dansleikur í Víkurröst  fram eftir nóttu - DJ Hulio

Sunnudagur 25. maí
Á Degi barnsins,  ætlum við að koma saman "austur á sandi",  með skóflur, fötur og form og byggja sandkastala og fleira. Leikir og sprell undir stjórn hins eina sanna Adda Sím.

*** Sjö listamenn dvelja á Húsabakka næstu 10 daga á vegum Díónýsía. Íbúum er frjálst að hitta þau þar og vinna með þeim. Listamennirnir taka þátt í Eurovision þorpinu m.a skrúðgöngunni. Takið vel á móti þeim og nýtið ykkur tækifærið til að vinna með þeim næstu daga.

 


Styttist í stuðningsmyndbandið

Stuðningsmyndbandið er enn í klippingu og verið að fínisera það......kannski kemur það í kvöld en pott þétt á morgun. Það er snillingurinn Gummi Pálma sem situr sveittur við makkann og klippir og lagar þetta allt saman til.

Ég fer í viðtal á Rás 2 hjá Gesti Einari í fyrramálið klukkan 8.30. Samfélagið í nærmynd verður sent út frá Dalvík á miðvikudagsmorguinn og þann sama morgunn mun elskan hún Margrét Blöndal taka upp innskot í Kastljós miðvkudagskvöldsins...nánar um það síðar.

Ég mun setja dagskrá Eurovisonþorpsins hér inn á morgun seinnipart eða annað kvöld, þar er margt í boði...fylgist með.

En aðalmálið er að okkar fólk í Serbíu er að standa sig vel og okkur skilst að Friðrik Ómar og Regína Ósk séu landi og þjóð til mikils sóma og séu mjög dugleg. Það er ein mitt það sem skiptir máli og þá er hálfur sigur unninn.

P.s Prik til ykkar allra sem hafið commentað og sent kveðjur á ýmsan máta....Áfram Ísland.

Næsta síða »

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband