Allir sáttir.

HandShake_Business_Edited Tilraunverkefni lögreglunnar um að leita sátta í smámálum finnst mér vera hið besta mál, í einhverjum tilfellum hentar það síður en ég ansi hræddur um að í mjög mörgum tilfellum er skömmin nóg refsing og ef að menn standa sáttir upp frá borðinu er tilganginum náð. Mín trú er sú að verkefnið muni ganga vel og verði haldið áfram eftir þessi tvö ár.
mbl.is Gerandi og þolandi ræða saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingjarnir.

Það er nú annað hægt en að vorkenna þessum karlagreyjum sem sjá einhverja gróðavon í því að segjast eiga barn Önnu og hinn heppni eða óheppni fær dánarbú hennar ásamt hugsanlegum risafjárhæðum vegna dómsmála.......er þetta ekki dálítið of mikið.....má ég frekar biðja um eitthvað annað á Valentínusardeginum sjá HÉR


mbl.is Lífvörðurinn kann að vera barnsfaðir Önnu Nicole
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Late dinner og rauðvín.

 Það er alltof lítið til af sykursætum dögum, þegar við dettum í kærleiksríkan jólalegan og væminn gír, ég hef sagt það áður við erum of feiminn við að vera mjúk, mýktin er innra með öllum og það er hverjum manni hollt að opna fyrir henni, hún losar, græðir og eykur kærleiksríka sýn. Nýtum okkur daga semjtch7-hug-heart þessa sama hvað þeir heita eða hvaðan þeir koma. Skiptum algjörlega um gír í dag..."prófaðu bara ...þetta virkar". Gerðu eitthvað í dag fyrir elskuna þína sem þú hefur aldrei gert áður t.d mættu í vinnuna til hans/hennar með blóm og lestu upp ljóð eða farðu með frumsamið -  mættu í vinnuna með farseðla til Parísar og þið drífið ykkur í dag, það er alltaf hægt að vinna vinnuna eða safna peningum síðar....og ömmur vilja passa barnabörnin sín  -  vertu búin að láta renna í heitt bað er elskan kemur heim og vertu búin að öllu öðru og eldaðu góðan mat og bjóddu uppá Carmen rauðvín "Late dinner" eftir að börnin eru sofnuð og fáðu einhvern mjúkan söngvara til að koma eða fiðluleikara til að spila 1 - 2 lög og að lokum ertu búin að skipta á rúmunum og fá frí fyrir hádegi fyrir elskuna. Svona er lengi hægt að halda áfram og í nútíma tæknivæddu þjóðfélagi er hægt að nota sms til að senda elskunni sinni sæt, krúttleg eða heit skilaboð.....þú getur gert það strax..prófaðu.

 

En það er14. febrúar ár hvert sem Valentínusardagurinn kemur og algengt er í  vestrænu samfélagi að elskendur og aðrir tjái ást sína með því að gefa rómantíska gjöf á þessum degi. Upprunalega hefðin var sú að senda bréf eða kort til sinnar heittelskuðu, svokölluð Valentínusarkort. Margir telja Valentínusardaginn vera Bandarískt fyrirbæri. Áður en hann var kenndur við Valentínus var þessi dagur haldinn til heiðurs rómverska frjósemisguðinum Lupercus og var í þá daga slátrað geit og drukkið vín auk þess sem menn hlupu um bæinn útataðir í blóði. Eftir að þáverandi keisari Rómar hafði bannað hjónabönd, þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu að einhleypir karlmenn væru betri hermenn, og kristnin hafði verið gerð að ríkistrú í Rómaveldi var dagurinn eignaður Valentínusi, presti sem var hálshöggvinn þennan dag fyrir að gefa saman ung pör sem mátti ekki gefa saman, eða svo segir sagan. Eftir aftöku var Valentínus titlaður verndari elskenda og dagurinn loks haldin honum til heiðurs. Sumum eru í nöp við þennan dag hér á Íslandi af því að við tókum hann beint upp eftir kananum, mér finnst það ekki skipta máli okkur veitir ekki af öllum slíkum dögum sem gefa okkur tækifæri og minnir okkur á hvað það er mikilvægt að hlúa að ástinni. Síðan getur hver og einn haft eins marga Valentínusar eða ástardaga eins og hann vill – því fleiri.því betri.


Kúluskítur.

billedUm leið og ég las þessa skemmtilegu frétt datt mér í hug grænþörungurinn "Kúluskítur". Akanvatn á eyjunni Hokkaido í Japan og Mývatn eru einu vötnin sem hafa stórar kúlur kúluskíts í umtalsverðu magni.  Ég veit ekki af hverju mér kom þetta í hug og vona Japananna vegna að það sé enginn skítur í Kakóbaðinu þeirra, sérstaklega ekki ef menn eru mikið að bragða á baðinu. Ég veit ekki til þess að í Mývatnsveit fari heimamenn í kakó eða súkkulaðiböð einn hitt veit ég að þeir eiga frábær jarðböð....og því ekki að skella sér með elskunni sinni í jarðböðin í Mývatnssveit á Valentínusardaginn og bjóða henni svo upp á "hreint" súkkulaði á eftir.


mbl.is Súkkulaðibað í tilefni Valentínusardags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott en ekki nóg !

Þetta eru góðar fréttir og þakkir eiga skyldar þeir aðilar sem komu að þessu og þá ekki síst fjölmiðlarnir án þeirra væri þetta mál ekki statt þar sem það er nú.  En það eru fleiri sem eiga um sárt að binda sem ekki er minnst á í fréttinni t.d  nemar í Heyrnleysingjaskólanum, stúlkur af Bjargi og ættu ekki stjórnvöld að aðstoða fórnarlömb barnaníðinga sem ættu að vera lokaðir inni á stofnunum á vegum stjórnvalda...maður spyr sig ?. Ég efast ekki um að þessi teymi vinni vel, en þetta má ekki vera redding af hálfu ríkisstjórnarinnar, það þarf að vinna áfram , hvað með fjárstyrki til fórnarlamba.....og svona að lokum fá stúlkurnar í Byrginu ekki afsökunarbeiðni frá forsætisráðherra íslands ?
mbl.is Áfallateymi vegna Byrgisins og Breiðavíkur taka strax til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitaðu þér hjálpar áður en þú fremur sálarmorð

Verndum börnin okkar……hvað er barnið þitt að gera í tölvunni ? Það virðist vera svo mikið af hörmulegum fréttum undanfarnar vikur að eitthvað af því sem er í gangi verður undir. Þess vegna er ágætt að láta ýta aðeins við sér til þess að við...

SKO ömurlegar auglýsingar

Nú get ég ekki orða bundist lengur og verð að vera neikvæður í garð auglýsinga SKO símafyrirtækisins. Þjónustuna eða fyrirtækið þekki ég ekki og er ekkert að skrifa um það....en ef að fyrirtækið er eins og auglýsingarnar þá er ekki mikið varið í það....

Silvía Nótt komdu fljótt.

Stórstjarnan Silvía Nótt veldur mörgum hugarangri og margir skilja ekki hvað er í gangi með þessa persónu. Annaðhvort hata menn hana, elska hana eða elska að hata hana. Hún og hennar gengi eru einfaldlega snillingar í markaðssetningu, hún þarf samt að...

Steingrímur - Geir - Össur

Það er mikið hægt að velta sér uppúr tölum eða niðurstöðum úr skoðanakönnunum líkt og þessari sem birtist í Fréttablaðinu í dag um traust á stjórnmálaforingjum. Ef leitað er eftir þremur vinsælustu eða þeim þremur sem íslendingar bera mest traust til með...

Breiðavík - KSÍ.

Síðasta vika var þó nokkuð mikið undirlögð af fréttum frá Breiðavík og maður veltir fyrir sér hvað gerist næst, stjórnmálamenn hafa lofað rannsókn og einhverjum aðgerðum, hvað þýðir það ? Ég tel að það þurfi að gera eitthvað strax. Ég hef það á...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband