Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Fálkaorðuna til Dalvíkur

Mátti til með að birta þetta bréf sem er birt í Velvakanda í Morgunblaðinu í dag - Gaman af þessu.

ÉG GET ekki orða yfir gestrisni Dalvíkinga í kringum Fiskidaginn mikla. Ég var mætt þarna ásamt fjölskyldu minni á miðvikudeginum og þá var orðið ansi margt um manninn. Á öllum stöðum sem maður þurfti að sækja þjónustu voru allir eins og þeir hafi fengið sér meðferð í mannlegum samskiptum, þvílík kurteisi og lipurð. Meira segja fólkið sem þreif klósettin á tjaldstæðum bæjarins var í essinu sínu alla helgina. Alveg fannst okkur frábært að heimsækja bláókunnugt fólk á föstudagskvöldinu og þiggja hjá því fiskisúpur af hinum ýmsu og allt sem þeim fylgdi. Okkur leið eins og við værum komin heim til vina okkar, sennilega hefur þessi frábæra Vináttukeðja sem mynduð var fyrr um kvöldið átt þátt í þeirri líðan. Skreytingarnar við húsin voru rosalega skemmtilegar og allir virtust taka þátt. Á kvöldin gat maður rölt í bæinn og notið stemmningar eins og gerist á góðu kvöldi í útlöndum, tónlist var leikin af fingrum fram hér og þar og úr görðum og ungir sem aldnir undu sér vel. Þetta er aðeins brot af þessari heimsókn okkar sem ég rifja upp og er alveg viss um að fálkaorðan á fullt erindi til ykkar, Dalvíkingar.

Takk fyrir okkur. Elínborg Ben


Mamma

Það var margt á dagskránni og mörg sterk og eftirminnileg móment sem maður upplifði í tengslum við Fiskidaginn mikla, ég var að hugsa um að blogga eitthvað um þetta en ég er hræddur um að það verði of mikið. Allavegana ætla ég að segja frá laginu "Mömmu" sem var frumflutt á Vináttukeðjunni sem var föstudagskvöldið 10. ágúst. Þannig var mál með vexti að stjórnarformaður Fiskidagsins mikla "Steini Minkur" Þorsteinn Már Aðalsteinsson samdi texta fyrir 10 árum er fyrsta barnabarnið hans fæddist. Í textanum koma fram vangaveltur hans um hve öflugar mæður jarðar eru er þær fæða heiminn með brjóstamjólk. Við vissum af áhuga hans á að samið yrði lag við textann. Við félagar hans í stjórninni gerðum svo bíræfnir og tókum textann og báðum Friðrik Ómar Hjörleifsson að semja lag. Steini vissi ekki neitt af neinu fyrr en að við kynntum til sögunnar frumflutning á lagi með texta eftir hann á planinu við kirkjuna fyrir framan þúsundir gesta á Vináttukeðjunni. Lagið var flutt af Friðriki Ómari, Gyðu Jóhannesdóttur ungri Dalvískri snót og öflugum Karlakór Dalvíkur, í lok lagsins var skotið upp flugeld og þá tóku gestir höndum saman og mynduðu Vináttukeðjuna og 5000 friðardúfublöðrum var sleppt, það vöru mörg tár sem féllu á þessari stundu og margir harðjaxlarnir sögðust hafa þurft að kyngja kökknum sem var í hálsinum á þeim. Af mörgu mögnuðu þá stóð upp úr á Vináttukeðjunni hve allir voru fljótir að taka höndum saman....einstök stund !....og á eftir létum við ganga knús...sem gekk alla helgina, það er gott að fá knús og það er gott að knúsa. Lagið eftir Friðrik Ómar er alveg magnað og textinn líka, ég vona svo sannarlega að lagið "Mamma" eigi eftir að hljóma á öldum ljósvakans....ég veit að lagið er til á Bylgjunni og ríkisútvarpinu allavegana og það er aldeilis þess virði að biðja um það þar svo að allir fái að heyra.
Ég læt textann hans Steina fylgja hér með í færslunni

Mamma.

Í löndum öllum lítil börn
Leggja munn við brjóstin þín
þá lítur fyrsta lífsins vörn
litlu augun mín

Móðir kær þín mjólk er góð
Mátt úr henni teiga ég
Ég mun þræða þína slóð
Þú ert yndisleg

Mamma...

Að fæða heim er firnaverk
fáum tekst það vel að gera
Mæður jarðar máttarverk
mega allar stoltar vera

Mamma, mamma..........

Misjafnt bí(ý)ður manna veröld
Mjúkar hendur faðma vill
Hún er stundum hörð og köld
Hún er stundum ill

Veröld okkar verður snúin
Vindar blása hér og þar
Eins er auður annar rúinn
allra bíður eilífðar.

Mamma !
Mamma !
Mamma !

Trúin flytur fjöll.
vinakjdh

Hér sést sterk birta yfir Dalvíkurkirkju á Vináttukeðjunni og hluti af þátttakendum hennar í ljósmynd Jennýar D Heiðarsdóttur

 


Það er seigt í Ingvaraættinni

Gaman að lesa þessa frétt af frænda mínum og Svarfdælingnum Birki frá Ingvörum, ég efaðist aldrei um að hann tæki þetta með stæl. Börkur tvíburabróðir Birkis er en á hlaupum og ætlar að klára 163 kílómetra....aðeins....Það hefur oft verið tala um Ingvaraorkuna og þeir bræður hafa svo sannrlega náð að virkja hana á skemmtilegan hátt. Til lukku bræður.
mbl.is Birkir Árnason lauk 86 km fjallahlaupi í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær píur frumsýndar.

Ég bíð spenntur eftir því að fara og sjá Astrópíu.  Gunnar Björn leikstjóri Astrópíu stóð í stórræðum í gær á sama tíma og verið var að frumsýna Astrópíu þá eignuðust hann og kærastan hans Lára litla prinsessu, það má því með sanni segja að Hafnfirski snillingurinn Gunnar Björn hafi frumsýnt tvær píur í gær. Til hamingju Gunni og Lára og njótið vel.
mbl.is Astrópía frumsýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband