Skondið.

Ef að maður skoðar viðbrögð við skoðanakönnunum smáum sem stórum kemur margt skondið  í ljós. Þeir sem eru spurðir eru snillingar i að svara, alveg sama hversu illa þetta lítur út þá sjá menn alltaf eitthvað jákvætt og það finnst mér bara hið besta mál, það er nauðsynlegt að vera jákvæður og þingmenn þurfa einmitt að vera jákvæðir en jafnframt raunsæir. Könnunin í Blaðinu í dag virkar ekki mjög áræðanleg, mér finnst hún kannski bara skemmtileg, skapar skondið andrúmsloft. Þeir sem koma vel út eru strax farnir að tala um sigur og í huganum byrjaðir að horfa lengra en gáfulegt þykir á þessum tímapunkti og hinir reyna að finna ástæður og trúa ekki sínum eigin augum. Maður spyr sig hveru margir trúa því að niðurstaðan þann 12. maí verði svona.Fyrir hinn almenna kjósanda held ég að þetta líti svona út : Sjálfstæðisflokkur hefur setið hjá í umræðunni undanfarið og t.d auglýsti nú Spaugstofan eftir Geir um helgina...þetta er eflaust meðvitað og gott útspil hjá þeim, þannig að staða þeirra gæti breyst er líður er þeir fara að taka þátt í umræðunni og kannski breyst mikið þegar Árni Johnsen segir EITTHVAÐ. Maður er kannski minnst hissa á fylgi VG þeir eru stapilir, eru með skýra stefnu og standa á skoðunum sínum. SF er út og suður og vita ekki hvert þeir stefna foringinn er mikið í umræðunni og dálítill vandræðagangur hjá henni og hún fær kannski óvægna meðferð í skrifum fjölmiðla og bloggara og það hefur áhrif á fylgið núna. Þetta á aftir að breytast þegar líður á en það verður erfitt að ná fyrra fylgi. Framsókn er á kunnuglegum slóðum, þó heldur neðar en áður þekkist, ég veit ekki hvort að menn fara að breyta sögunni í þessum kosningum en Framsókn fær meira fylgi heldur en þetta. Lítið fylgi Frjálslyndra er skiljanlegt á þessum tímapunkti, en þeim að kenna og enginn getur spáð fyrir um hvað gerist hjá þeim.....en 10 % fá þeir ekki. Svona lítur þetta út í dag hjá hinum almenna kjósanda...sem er nánsat að tjá sig um landspólitik í fyrsta skipti opinberlega. 


mbl.is Samfylkingin með minna fylgi en VG og ríkisstjórnin heldur velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar áhugasamir.

Við hér á litla íslandi eigum mörg hver eftir að klikka á þessa frétt vegna fyrirsagnarinnar " Vinsæl messengers1skilaboð að handan" Við erum meðvituð og forvitin um þessi mál þ.e.a.s dulræn málefni og höfum verið lengi og held að áhuginn eigi aðeins eftir að aukast.  Ég tel að það séu margar ástæður fyrir þessum áhuga íslendinga, það gerir myrkrið, skammdegið, gott upplýsingaflæði, útvarpsþættir, mikið til af rituðu og þýddu efni og fleira mætti telja eins og Sálarannsóknar og Álfaskólann. Með síaukinni tækni, tólum og netinu grunar mig að mannfólkið eigi eftir að sækja meira í dulræn mál er spennan í kring um hið veraldlega fer minnkandi eða fullnægir ekki spennuþörf okkar.
En að myndinni " Messengers" ég er ekki búin að lesa neitt um þessa mynd nema það sem stendur í þessari mbl frétt. Við fyrsta lestur finnst manni að þessi hugmynd hafi verið notuð hundrað sinnum...en virkar eflasut aftur og aftur.
"Myndin fjallar um fjölskyldu sem flyst inn í gamalt hús uppi í sveit. Börnin taka fljótlega eftir því að ekki er allt með felldu í húsinu, en það tekur fullorðna fólkið töluvert lengri tíma að átta sig á því. "

mbl.is Vinsæl skilaboð að handan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir...góður sjóður.

Það var gleðilegt þegar þessi sjóður var stofnaður og gleðilegt að sjá fréttir um úthlutanir sem þessar í dag og áður þar sem fjöldi manns fær þeirra notið á ýmsan máta. Það er svo margt gott og heiðarlegt starf sem byggist á sjálfboðaliðastarfi og styrkjum.


mbl.is 56,5 milljónum úthlutað úr Styrktarstjóði Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi sori er út um allt.

Það líður ekki sú vika núna undanfarið öðruvísi en maður lesi í fréttum eða heyri af einhverjum viðbjóði sem að maður í sakleysi sínu hélt jafnvel að væri ekki til og alls ekki í þessum mæli. ....og hvað þá að það sé hugsanlega einhver hundruð til af slíkum perrum á okkar litla íslandi. Maður hefur ekki þekkingu til þess að tjá sig mikið um þetta en ég ítreka það sem ég hef áður skrifað t.d
Pössum börnin okkar. - Hvað er barnið þitt að gera á netinu ? - Með hverjum er barnið þitt ?

mbl.is „Tálbeita" fundin sek um að leggja á ráðin um nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skora á Andra Snæ Magnason.

FiskidagurinnÍ DV um helgina voru nokkrir þjóðkunnir menn spurðir út í það hvernig þeir myndu halda uppá fimmtugsafmælið sitt ef þeir hefðu ótakmarkað fé á milli handanna. Andri Snær Magnason var einn af svarendum. M.a  kom fram í svari hans að hann ætlaði að eiga heima í Perlunni og fá skipuleggjendur Fiskidagsins mikla á Dalvík til þess að sjá um veitingarnar, hann ætlaði að bjóða allir þjóðinni í teitið. Að sjálfsögðu var ég ánægður með svör Andra, alltaf gaman að sjá eða heyra minnst á Fiskidaginn mikla. Þar sem mér er málið skylt skora ég á Andra Snæ að koma norður og halda uppá afmælið sitt hér á Dalvík á Fiskidaginn mikla, hann getur boðið eins mörgum og hann vill, nóg af mat, fullt af skemmtiatriðum og flugeldasýning í lokin og allt frítt. Peningana sem afmælið í Perlunni hefði kostað verður hægt að nota t.d til umhverfismála.
Vertu velkominn Andri Snær.

Er sumt flóknara en annað. ?

Ég þurfti að lesa þessa frétt aftur til að vera viss um hvað væri í gangi, samt varð ég ekkert viss. OK ég er ekkert svo mikið inní þessum málum, sennilega vantar mig nokkur pússl. En fyrir hinn almenna lesanda sem er núna með það í kollinum að Reynir...

Ánægður með niðurstöðurnar.

Í síðustu viku var ég með skoðanakönnun á blogginu um hvað veður væri rómantískast. Niðurstöðurnar liggja fyrir: Sól og blíða           10% Haustsvali             10% Volg vorrigning      19 % Norðan stórhríð     58 % Þetta eru áhugaverðar niðurstöður en...

Langflottastur

Þegar maður les svona skemmtilega frétt í fallegu frostveðrinu snemma dags hér á Dalvík á litla íslandi. Veltir maður fyrir sér þeim árum sem Heiðar átti heima hér og spilaði fótbolta með Dalvík, ég man að manni þótti það heilmikið skref og upphefð er...

Frábærar fréttir :)

Þetta eru frábærar fréttir fyrir alla, nema kannski sjoppueigendur á hinni hefðbundnu suður, norðurleið. Ég vil óska félaginu og landsmönnum öllum til hamingju. Vonandi gengur þetta allt saman eftir.

Laugahrekkur - Umræður í athugasemdum.

Bloggaði færslu HÉR  um hrekkinn eða þá atburði sem áttu sér stað í framhaldsskólanum á Laugum um helgina, sem birtust fyrst í fréttum Stöðvar 2 að ég held. Málið er í rannsókn. Ég var líka að velta fyrir mér gömlum hrekk sem síðar var búin til...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband