Ég tel að það væri skemmtilegra að fylgjast með bloggehiminum á næstunni, fram að kosningum ef að bloggarar myndu þora að segja það sem þeim virkilega býr í brjósti.......ekki bara fyrir flokkinn og svo framvegis...að mínu mati er of mikið neikvætt hjal um andstæðingana og stöðugt verið að ráðast á þá sem þeir sennilega óttast og koma ekki með neitt uppbyggjandi eða jákvætt í staðinn. Það væri gaman að mæla (Ef það væri hægt) hversu mikil orka fer í neikvæðni og niðurrif hjá bloggurum og pólitíkusum. Um leið og við skrifum neikvætt um eitthvert framboð/flokk...eða jákvætt þá er búið að stimpla.... já hann kýs ekki þennan flokk.....eða hmmm hann kýs þennan flokk. Þannig er þetta ekki og þannig á þetta ekki að vera, við verðum að geta gagnrýnt þann flokk sem við ætlum að kjósa og við verðum að geta verið jákvæð, eða sagt eitthvað jákvætt um þann flokk sem við ætlum ekki að kjósa...og við verðum líka að geta skipt um skoðun.
Er ég Samfylkingarmaður ef ég segi:
Að mér finnist að miðað við stöðu mála sé Ingibjörg Sólrún virkilega að standa sig vel, hún bugast ekki þótt það sé ráðist á hana úr mörgum áttum og sumir hér á moggablogginu eru með hana gjörsamlega á heilanum...er ekki málið að þeir óttast hana.
Er ég Sjálfstæðismaður ef ég segi:
Að mér lítist vel á mannskapinn hjá Sjálfstæðismönnum í mínu kjördæmi NA og þar sé fólk sem ég treysti til þess að vinna að því sem mér finnst skipta máli.
Er ég Íslandshreyfingarmaður ef ég segi:
Að mér lítist vel á framboðið og ég bíði spenntur eftir því að sjá þá sem leiða listana, og að ég telji að framboðið eigi eftir að koma á óvart og að ég telji að góðir hlutir gerist hægt og að þau toppi á réttum tíma.
Er ég Framsóknarmaður ef ég segi:
Að blaðið sem Framsókn sendi inn um lúguna hjá mér hafi verið gott og jafnvel skemmtilegt og að í þriðja sæti í mínu kjördæmi sé maður sem ég vildi hafa í mínu liði.
Er ég Vinstri grænn ef ég segi:
Að ég sé hrifinn af staðfestunni hjá þeim og á nokkrum stöðum séu þeir með mjög gott fólk sem á sannarlega heima í ríkisstjórn.
Er ég Frjálslyndur ef ég segi:
Að Frjálslyndi flokkurinn sé fyndinn flokkur
Framsóknarmenn boða áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir
Athugasemdir
Þú ert greinilega Frjálslyndur - sé strax í gegn um þetta
Finnst annars frábær þessi hvatning hjá þér að draga úr neikvæðninni. Spá frekar í það hvað maður vill styðja en hitt sem maður er á móti...
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 15:25
Hæ Auður....nei ég verð að viðurkenna að ég vissi bara ekki hvað ég átti að skrifa úm Frjálslynda flokkinn.
Júlíus Garðar Júlíusson, 10.4.2007 kl. 16:14
Þú er Dalvíkingur og það alveg frábært eintak hef ég heyrt. Ég fjallaði einmitt um þessa jákvæðni á mínu bloggi og gekk svo langt að lofa því að vera ekki með persónulegt skítkast. Held ég standi við það, en skoðanir, af þeim hef ég nóg og kýs X-D, finnst þeir bestir fyrir mig og mína.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.4.2007 kl. 21:49
Ég myndi segja að þú virkaðir svona frekar framsækinn og sjálfstæður vinstri grænn samfylkingarmaður í íslandshreyfingunni ...
Hólmgeir Karlsson, 10.4.2007 kl. 21:59
ja það er ekki að spyrja að dalvískri greiningu á mannlífi og menningu. Ég var að lesa á www.truno.blog.is um Dalvíkuryfirlýsinguna sem mér þykir tímamótaverk að opinbera. Líklega hafa menn og konur á Dalvík lengi vitað þetta, ekki nema von að eldri borgarar þar séu áberandi í málefnum sem máli skipta s.s. veðurspám...
Guðrún Helgadóttir, 11.4.2007 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.