Elskulegi eiginmaður.

Samvkæmt nýrri skoðanakönnun er það ljóst að flokkarnir þurfa að huga að vel að konunum, sem allir eiga auðvitað ávallt að geraInLove en það verður fylgi þeirra sem ræður úrslitum þann 12. maí. .....Að lokum smá föstudagsgrín til þess að leggja áherslu á orð mín hér að framan.

Hæ hæ elskulegi eiginmaður. Áður en þú kemur heim úr viðskiptaferðinni vil ég bara láta þig vita um smá óhapp sem varð hér heima. Ég vil samt taka fram að það er allt í lagi með mig og ég er alveg ómeidd, svo þú hafir ekki óþarfa áhyggjur. Málið er að þegar ég var að koma heim úr búðinni í gær á stóra pallbílnum og var að beygja inn í innkeyrsluna varð ég fyrir því að, í stað þess að stíga á bremsuna, steig ég óvart á bensíngjöfina. Bílskúrshurðin beiglaðist dáldið en það sem verra var að antik- Ferrariinn þinn, sem ég veit að þú heldur svo mikið uppá, beiglaðist dáldið mikið þegar pallbíllinn stoppaði uppá honum. Ég ætlaði að reyna að rétta hann aðeins og eina sem ég fann til þess voru nýju flottu golfkylfurnar sem þú lést sérsmíða fyrir þig. Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því hvað væri veikt í þeim, en þær bara beigluðust líka. Þá hugsaði ég með mér að reyna að bæta fyrir þetta allt með því að hafa allavega allt hreint og fínt þegar þú kæmir heim svo ég ákvað að þvo öll nýju sérsniðnu jakkafötin þín. Þú manst, þessi gráu voru með oggolitlum sósublett á innanverðum jakkanum og þessi grænu voru pínu krumpuð á innanverðu fóðrinu. Því miður tókst ekki betur til en svo að ég setti þvottavélina óvart á suðu svo öll fötin þín hlupu um tvö númer. Elsku vinurinn minn, ég bara vona að þú fyrirgefir mér þennan klaufaskap, þetta var bara röð óhappa. Hlakka mikið til að fá þig heim, þín eigikona XXX

P.S. ... Ó,,já og kærastan þín í Frakklandi hringdi....

bill  

 


mbl.is „Vísbendingar um að VG svari eftirspurn eftir framboði umhverfisverndarsinna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Góður Júlli, alltaf léttir þú lundina með reglulegu millibili. Góða helgi!

Vilborg Valgarðsdóttir, 9.3.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Sveinn Arnarsson

þetta er að verða agalega skemmtilegur kosningaslagur, það er á kristaltæru.

Sveinn Arnarsson, 9.3.2007 kl. 17:56

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Vér konur þurfum að huga að eiginmönnum...eða bara gerast lesbískar...eins og ég he fgerts..enda karlmenn bara bestir í einu...


Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 9.3.2007 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband