Ég held með Fjölni........

Eflaust eru skiptar skoðanir um þetta mál og mörgum finnst að samningar eigi að standa.....en halló halló...þora FH ingar ekki að leyfa þeim að vera með ? Atli og Heimir hafa verið á mála hjá FH eru síðan lánaðir til Fjölnis og hafa staðið sig vel og FH leyfir þeim síðan ekki að njóta ávaxtanna..LélegtFrown  Það er ljóst að FH er ekki að hugsa um sína leikmenn. Ég skora á alla að mæta á völlinn og hvetja Fjölni, ég er nokkuð viss um að Fjölnir vinnur þenna leik 2 - 1...segi og skrifa tvö eitt fyrir Fjölni.  Ég var búinn að sjá þetta fyrir mér að minn maður Dalvíkingurinn Atli Viðar Björnsson spilaði leikinn en hann verður bara að fagna með sínum Fjölnismönnum eftir leik - Áfram Fjölnir - Áfram Ísland.

P.S Ég hef nú haft taugar til FHinga fyrir margar sakir...en þær taugar eru slappar þessa stundina.Grin  
mbl.is Atli Viðar og Heimir verða ekki með Fjölni í úrslitaleiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega þetta sem við vinnufélagarnir vorum að ræða í morgun: Allir andstæðingar FH að mæta á völlinn og halda með Fjölni ! Ég hef misst allar taugar til FH í kjölfar þessarar hræðslu ákvörðunar þeirra.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 11:05

2 identicon

Þeir eru bara hræddir við að spila við sína eigin leikmenn, þeir eru svo góðir og vilja ekki að þeir skori á móti "sínu" liði..

Sandra (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 13:38

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hér á heimilinu er til Fjölnisbúníngur, í eigu dóttlu minnar, en hún æfði með því liði fótbolta áður en við bjánuðumst til að flytja hérna norður á nesið.

Hann verður hengdur upp í stað treyju Tony Adams, sem að venjulega húkir yfir sjónvarpinu þegar horft er hér á fótbolta.

S.

Steingrímur Helgason, 12.9.2007 kl. 02:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband