Springi sá sem fyllstur er !

Var að koma úr "yndælishádegisárlegumsprengidagsmat" sem er alltaf í Skógarhólunum á Dalvík hjá Helgu og Guðmundi ár hvert, heimasaltað alvöru kjöt mmmmmm og húsbóndinn búinn að nostra við baunirnar, frábær matur, góður félagsskapur og gott spjall um daginn og veginn. Ég elska svona siði. Takk fyrir mig. Skelli smá upplýsingum um srengidaginn af netinu með í færsluna (Hjallaskoli.is) 
   " Sprengidagur er þriðjudagur í 7. viku fyrir páska. (3. febrúar til 6. mars). Á sprengidag var frá kaþólskum sið borðað mikið kjöt enda var þetta síðasta tækifæri að borða kjöt fyrir lönguföstu. Þá var venjan að borða hangikjöt, saltkjöt eða annan undirstöðuríkan mat sem til var á bænum.Mönnum ber ekki saman um hvaðan heitið á deginum kemur.Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir frá fólki sem var að borða mikla kjötmáltíð og segir húsmóðirinn eftir að búið var að borða: "Guði sé lof, mett er ég og mínir" Dóttir húsmóðurinnar hugsaði með sér að mamma hennar hefði örugglega fengið meira að borða en hún segir: "Springi sá sem fyllstur er!" Þá kom í ljós hver hafði borðað mest því stelpan sprakk sjálf. Sagan segir að eftir það hafi dagurinn verið kallaður sprengidagur.Það var ekki nóg með að ekki mátti bragða kjöt alla föstuna, það mátti heldur ekki tala um kjöt. Almennt var þá að fólk talaði um klauflax í staðinn því menn máttu tala um fisk. Stundum tóku biskupar hart á brotum í föstunni, bæði
ef fólk borðaði kjöt og einnig ef það talaði um það.

Enginn mátti nefna ket
alla föstuna langa:
hver það af sér heyra lét,
hann var tekinn til fanga.

Sprengidagur er enn í heiðri hafður og mjög margir Íslendingar borða salkjöt og baunir alltaf á sprengidag. "


Heyrðu mig nú Halla...

...hvað ert þú að bralla....var ekki textinn eitthvað á þessa leið hjá Ladda. Merkilegt er með þessi slúðurblöð hvað þau eru fljót að að finna út hvað er að gerast eða það sem líklegra er að búa eitthvað til. Kannski halda erlendir þekktir gestir að Ísland sé svo lítið og afskekkt og sennilega lélegt eða ekkert netsamband hér í snjóhúsunum að þeir geti komið óáreittir hingað. Við eigum að vinna í því að Ísland verði slúðuröruggt land, þekkt fólk geti komið og skemmt sér eða dvalið í styttri eða lengri tíma án þess að pressan sé á staðnum eða  myndavélar á lofti.......Ferðaþjónustan í landinu ætti að skoða þetta, þarna eru peningarnir....Slúðurlaust öruggt Ísland er okkar stóriðja....fræga fólkið á meiri peninga heldur en einhverjir álplebbar ekki rétt...Oft er spurt þegar fátt er um svör.

mbl.is The Sun fjallar um Jude og Höllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ljótt...

37012988_28cd137b83 ....að halda því fram að einhver sé að segja ósatt og ætla ég ekki að halda því fram. En mér finnst þetta vera frekar ótrúlegt allt saman og ég er hissa ef þeir aðilar sem að þessu koma haldi að fólk trúi þessu.......hmmm þá er ég kannski farinn að halda því fram að einhver sé að segja ósatt...er það kannski málið...Oft er spurt þegar fátt er um svörShocking   
mbl.is Segir um 30 tré úr Heiðmörk í geymslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg saga.

Hvað er betra en að vera inni í hlýjunni þegar rigningin og vindurin hamast á húsinu, best væri nú að vera undir sæng og sofa. En einmitt núna þegar veðrið er svona er ég andvaka, ég sem er aldrei andvaka sit nú bara við gluggann, stari út á götuna og horfi út í veðurhaminn sem tekur á sig ýmsar myndir…. hann tekur vel á því og hægir á sér á milli. Rigningin verður myndræn í ljósgeislum götuljósanna og þegar hann fer upp í marga metra á sekúndu er eins og að veðrið breytist í dreka með stóran faðm sem togar trén til sín og sleppir þeim svo með miklum hvin, hann hristir og lemur húsin og treður sér upp undir þakskeggin, eins og að hann sé að fæla fólk út á götu, beint í gin sitt. Er ég stari út um gluggan sé ég engan á ferli, ekki einu sinni farartæki. Ég hef áður setið við þennan glugga og horft út í ýmsum veðrum og alltaf er einhver á ferli,  en núna er enginn ! Oft kemur Óli í Báruhúsi heim á þessum tíma og Stella líka hún vinnur kvöldvaktir á dvalarheimilinu, já og Eggert vélstjóri fer alltaf á sama tíma heim úr vélarhúsinu, þetta er eitthvað undarlegt.Það er komið fram yfir miðnætti og ég hef ekki séð neinn ennþá, er veðrið svo slæmt að enginn þori út ? það hefur oft verið verra, norðan stórgarður með miklum snjó, ófærð og rafmagnsleysi. Ég nenni ekki að halda áfram að fylgjast með, ég fæ mér kaffisopa og jólaköku sem er kannski ekki ráðlegt á þessum tíma, kaffi heldur fyrir mér vöku. Ég ákvað samt að fá mér kaffi ég myndi hvort sem er ekki sofna. Útvarpið !  kannski ég nái veðurfréttunum…. ekkert útvarp ! …suð á öllum stöðvum, kannski er gamla útvarpið mitt búið að syngja sitt síðasta. Klukkan er orðin tvö og ég er ekki vitund syfjuð, það er enginn á ferli, veðurhamurinn hefur aðeins minnkað, en hann rignir mikið enn. Afhverju er ekkert ljós í verksmiðjunni ? þeir eru vanir að vinna á vöktum og það er alltaf ljós þar,  þeir slökkva aldrei á því ekki einu sinni um jól. Ég verð nú að reyna að sofna, fara í rúmið og berja mig niður enda klukkan að ganga fjögur. Ég dottaði í einn klukkutíma og mér finnst ég vera útsofinn, ég skil þetta bara ekki, kannski er svo djúp lægð yfir landinu sem hefir öll þessi áhrif á mig. Nú er klukkan að verða sex og þá er best að fylgjast með systrunum í næsta húsi og Óla í Báruhúsi þau vinna í frystihúsinu og mæta til vinnu klukkan sex , það má stilla klukkuna eftir þeim. Skrýtið, ég hef aldrei á minni löngu ævi upplifað þetta, þau koma ekki ! er ekki virkur dagur ?, jú jú það er miðvikudagur 13 október, ég er kannski orðin hviðusöm, ég verð nú að hætta að hugsa um þetta , þetta á sér eflaust einhverja skýringu, ég er bara svefnlaus. Nú er klukkan að verða sjö  og ég þá get ég hringt í Jóhannes, þetta er nú of mikið af því góða, síminn dauður ! útvarpið…langbylgjan, ég verð að finna hana, helvítis suð..kannski kemur það inn klukkan sjö, þetta suð er eins og ég veit ekki hvað, eftir því sem ég hlusta meira á það, hljómar það eins og napur, sorglegur og einmanna  taktur. Nú er veðrið orðið mjög gott hann hefur alveg lægt og er hættur að rigna, mér nú aðeins létt og vonandi fara hlutirnir að skýrast…." …ss…ss strax… þv. ss  var varpað á nyrsta hluta landsins….s.ss..….vegna geislunar…….allir.. ekki er talið að nokkur hafi komist af…….sssssssssssssssssssssss " 

Ég var að laga til í tölvunni minni og rakst á þessa sögu sem ég skrifaði fyrir löngu er ég beið á læknabiðstofu eftir sjúklingi...ætlaði að henda henni en datt þá í hug að henda henni inná bloggið, hún er hér eins og hún kom af kúnni á biðstofunni.....með villum og öllu. En hvað hefur maður verið að hugsa, þetta er nú ekki trúleg saga....eða hvað ? 

  

Næsti forseti Íslands.

Í gær var Ólafur Ragnar forseti vor í spjallþætti hjá Agli í Silfrinu, ég sá ekki þáttinn og hef lítið heyrt af honum þannig að mér þykir líklegt að allt hafi gengið vel enda á ég ekki von á öðru þegar Ólafur Ragnar á í hlut. Nú eru sumir farnir að velta fyrir sér hver verði næsti forseti landsins, flestum þykir líklegt að Ólafur bjóði sig ekki fram aftur en ég held að hann ætti bara að gera það, hann er að standa sig vel. En ástæðan fyrir þessari færslu á bloggi mínu er sú að í nótt  dreymdi mig hver yrði næsti forseti landsins. Já þeir geta verið undarlegir draumarnir...en margir rætast....en draumnum kom það í ljós að Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarkona myndi sigra með yfirburðum. Ég spyr bara er þetta ekki hinn besti kostur, er ekki málið að láta hana vita af þessu....Oft er spurt þegar fátt er um svör.

Sorglegt.

Allar þessar fréttir af stelpugreyinu og móðurinni "Britney" eru afar sorglegar svo ekki sé meira sagt. Ég vann í tæp 20 ár með öldruðum þar var gömul kona og ef eitthvað var í fréttum líkt og þessar af Britney var hún vön að segja eitthvað á þessa leið...

Steggjun - Geggjun.

Þessi frétt um "Steggjun" sem fór úr böndunum þ.e.a.s brúðguminn var orðinn svo drukkinn að hann vissi ekki hvað hann var að gera minnir á sögur sem maður hefur heyrt af slíkum uppákomum. Ég hef verið veislustjóri í tugum brúðkaupa og oft eru sýnd...

Er gúrka ?

Hvað segir þessi frétt okkur ? Jú það hefur eitthvað ekki verið í lagi í búningsklefanum og Eggert gagnrýnir Alan Pardew í News of the world, hann segir að það sé ekki tímabært að ræða þessi mál opinberlega..punktur. Er það ekki málið er þessi frétt...

Lionsmenn í andyri Kaupfélagsins

Mín fyrsta minning um Konudaginn er þegar Lionsmenn á Dalvík seldu blómvendi í andyri Kaupfélagsins og prúðbúnir eiginmenn og kærastar rifu sig á fætur og keyptu blóm handa konunni semvar heima að elda sunnudagshrygginn góða. Mér finns nú að allir dagar...

Spáin mín ekki svo vitlaus..

Spá mín ...sjá 3 færslum neðar..var ekki svo vitlaus...veit ekki með 6 neðstu sætin en vonandi verða þau gefin upp síðar. Friðrik Ómar var í 3 sæti í fyrra, öðru í ár og næsta ári er komið að honum og Íslandi.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband