Þreytandi mál..ég er farinn á skíði

skiarea_medium

Þetta samráðsmál ásamt einu til tveimur öðrum er orðið voðalega þreytt og maður hefur ekki lengur áhuga á að lesa fréttir um það. Ég á það gott að geta bara skellt mér á skíði á 10 mínútum og rennt mér í unaðslegum brekkum Böggvisstaðafjalls við Dalvík. Þessi vika er búin að vera æðisleg, frost logn, tungslinskbjart og skíðafærið alveg magnað. Í gær var mikið að gera í vinnuni og á milli kl 16 og 17 skellti ég mér á skíði til að láta þreytu dagsins líða úr mér, börnin komin úr skólanum búin að læra og við fórum öll saman, tók okkur 10 mín að taka okkur til 3 mín að keyra að skíðasvæðinu og 4 mín að skella græjunum á okkur....allir með hjálmSmile....síðan renndum við okkur í stjörnubjörtum himni og tunglskinið lýstu upp fallegan Svarfaðardalinn....um kl 19.30 voru börnin búin að borða og háttuð þreytt og ánægð með daginn....má ég þá frekar biðja um stutta en afar góða skíðaferð heldur en fleiri fréttir af þessu tagi.


mbl.is Máli gegn olíuforstjórum vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá hvað þetta var yndisleg lýsing af góðum degi.  Hvenær ætli ég drattist norður á skíði, hef ekki komið heim á skíði í ca. 20 ár !!! Trúir þú því ?? En ég á þetta eftir og læt mig bara hlakka til.

Kveðja til ykkar allra.

Þórey Dögg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 18:39

2 identicon

Búinn að horfa mikið á brekkuna, asnalegt að búa á Dalvík og kunna ekki á skíði. Er enn á snjóþotustiginu :)

kv. Sonja í Brúarlandi

Sonja Lind (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 19:36

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndisleg mynd frá Dalvík. Ummm... maður getur skynjað heiðríkjuna, lyktina, hljóðin í snjónum, allt....!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2007 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband