Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Pólitík, blogg og örlítið af jákvæðni

Ég tel að það væri skemmtilegra að fylgjast með bloggehiminum á næstunni, fram að kosningum ef að bloggarar myndu þora að segja það sem þeim virkilega býr í brjósti.......ekki bara fyrir flokkinn og svo framvegis...að mínu mati er of mikið neikvætt hjal um andstæðingana og stöðugt verið að ráðast á þá sem þeir sennilega óttast og koma ekki með neitt uppbyggjandi eða jákvætt í staðinn. Það væri gaman að mæla (Ef það væri hægt) hversu mikil orka fer í neikvæðni og niðurrif  hjá bloggurum og pólitíkusum.  Um leið og við skrifum neikvætt um eitthvert framboð/flokk...eða jákvætt þá er búið að stimpla.... já hann kýs ekki þennan flokk.....eða hmmm hann kýs þennan flokk. Þannig er þetta ekki og þannig á þetta ekki að vera, við verðum að geta gagnrýnt þann flokk sem við ætlum að kjósa og við verðum að geta verið jákvæð, eða sagt eitthvað jákvætt um þann flokk sem við ætlum ekki að kjósa...og við verðum líka að geta skipt um skoðun. 

Er ég Samfylkingarmaður ef ég segi:

Að mér finnist að miðað við stöðu mála sé Ingibjörg Sólrún virkilega að standa sig vel, hún bugast ekki þótt það sé ráðist á hana úr mörgum áttum og sumir hér á moggablogginu eru með hana gjörsamlega á heilanum...er ekki málið að þeir óttast hana. 

Er ég Sjálfstæðismaður ef ég segi:

Að mér lítist vel á mannskapinn hjá Sjálfstæðismönnum í mínu kjördæmi NA og þar sé fólk sem ég treysti til þess að vinna að því sem mér finnst skipta máli.

Er ég Íslandshreyfingarmaður ef ég segi:

Að mér lítist vel á framboðið og ég bíði spenntur eftir því að sjá þá sem leiða listana, og að ég telji að framboðið eigi eftir að koma á óvart og að ég telji að góðir hlutir gerist hægt og að þau toppi á réttum tíma.

Er ég Framsóknarmaður ef ég segi:

Að blaðið sem Framsókn sendi inn um lúguna hjá mér hafi verið gott og jafnvel skemmtilegt og að í þriðja sæti í mínu kjördæmi sé maður sem ég vildi hafa í mínu liði.

Er ég Vinstri grænn ef ég segi:

Að ég sé hrifinn af staðfestunni hjá þeim og á nokkrum stöðum séu þeir með mjög gott fólk sem á sannarlega heima í ríkisstjórn.

Er ég Frjálslyndur ef ég segi:

Að Frjálslyndi flokkurinn sé fyndinn flokkur


mbl.is Framsóknarmenn boða áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stutt og sætt ævintýri

Einu sinni spurði strákur stelpu: Viltu giftast mér?”
Stelpan sagði: “Nei.”
Og strákurinn lifði hamingjusömu lífi eftir það, fór í veiði, horfði á fótbolta, spilaði mikið golf, drakk bjór og prumpaði hvenær sem honum sýndist.

ENDIR

Sterk tilfinning

Alveg frá því að það fór að halla undan fæti hjá West Ham og ekkert blasti við nema fall, hef ég haft það svo sterkt á tilfinningunni að þeir myndu ekki falla. Ég er sannfærður um að West Ham fellur ekki ( Ég er ekki West Ham fan eðá sérstakt Eggerts fan ) Bendi á eldri færslur máli mínu til stuðnings.

Miðvikudaginn 21. febrúar bloggaði ég þetta HÉR

Fimmtudaginn 1. mars bloggaði ég þetta HÉR

Mánudaginn 5. mars bloggaði ég þetta HÉR

 


mbl.is West Ham vann óvæntan útisigur á Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að......

...tala jákvætt um alla flokka/framboð.  Ég held að það væri verðugt verkefni fyrir alla, hvort sem að menn eru í framboði eður ei að stinga niður penna og reyna að skrifa 1 - 4 jákvæð atriði um hvert framboð/flokk. Þetta myndi auðvelda mörgum að ákveða hvað skal kjósa t.d ef maður á erfitt með að skrifað  jákvætt um eitthvert framboð/flokk þá fer maður nú ekki að kjósa viðkomandi eða hvað. Mér finnst það alltof algengt að bloggarar hér á moggablogginu eru á móti og skrifa sífellt neikvætt um þau framboð sem ógna þeirra flokki, sama þó að í hjarta sínu séu þeir kannski sammála góðri hugmynd andstæðinganna.

Ég skora á alla bloggara að takast á við þetta skemmtilega og verðuga verkefni og skrifa 1 - 4 jákvæð atriði um þá flokka/framboð sem munu bítast um atkvæðin okkar þann 12. maí n.k. Gaman væri að fá að fylgjast með hverjir taka áskoruninni.Grin

Úff ég verð að ríða á vaðið....... ég sagði aldrei að þetta væri auðvelt.

Sjálfstæðisflokkurinn
Er öflugur flokkur með myndarlegan menntamálaráðherra.

Samfylking
Á góðan varaformann sem hefur leitt góð mál til lykta og hefur gott fólk í baklandinu.

VG
Staðfastur flokkur sem stendur á sínu að öllu jöfnu og hefur öflugan formann.

Framsókn
Tekur vel við höggum á stjórnarheimilinu og gefst ekki upp.

Frjálslyndir
Standa  á sínu að mesu leiti.

Íslandshreyfingin
Nýtt og ferskt framboð með skemmtilegum blæ, sem á eftir að koma á óvart.

Baráttusamtökin 
Það er jákvætt fyrir þessa aðila að takast á við kosningabaráttuna.


mbl.is Ágúst Ólafur: Hætta á að atkvæði detti niður dauð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betlandi.

Þessi frétt var á visir.is í morgun

Vinstri græn báðu Alcan um peninga

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, óskaði eftir að Alcan í Straumsvík styrkti flokkinn um þrjú hundruð þúsund krónur fyrir komandi alþingiskosningar.Drífa Snædal, framkvæmdastýra VG, segir ekki óeðlilegt að flokkurinn óski eftir fjárstuðningi frá álfyrirtækinu. „Við sendum bréf á hundrað stærstu fyrirtækin í landinu og báðum um fjárstyrk. Annars er gengið mismunandi hart eftir þessu, við höfum til dæmis ekki ítrekað beiðnina við Alcan."
Fulltrúar VG börðust síðastliðna helgi gegn stækkunaráformum Alcan í Hafnarfirði.Drífa leggur áherslu á að þótt flokkurinn þiggi peninga frá fyrirtækjum hafi það engin áhrif á stefnu hans. „Við erum í þeirri aðstöðu að vera upp á náð og miskunn fyrirtækja komin, og úrtakið okkar var hundrað stærstu fyrirtækin á Íslandi. Alcan er eitt þeirra."
Samkvæmt stefnu Alcan um allan heim styrkir fyrirtækið ekki stjórnmálaflokka. Ætlar fyrirtækið hvorki að verða við beiðni Vinstri grænna né annarra flokka. Auk VG hefur Frjálslyndi flokkurinn sótt um styrk til Alcan.

Mér finnst þetta ekki vera frétt þannig lagað séð, en sennilega hefði verið betra fyrir VG að sleppa Alcan út listanum til þess að forðast svona umfjöllun. En þessi frétt vekur mig til umhugsunar um hversu fáránlegt það er að stjórnmálaflokkar, hvað sem þeir heita þurfi að vera betlandi fé út um koppa og grundir til kosningabaráttunnar. Allir flokkar ættu að fá jafnháa upphæð frá ríkinu og  ekki krónu meir, banna fé frá fyrirtækjum og ríkum einstaklingum. Með jafnri greiðslu frá ríkinu til allra flokka yrði baráttan réttlátari og jafnari og þá kæmu kostir einstaklinganna og flokkanna skýrar í ljós.
mbl.is Ríkisstjórnin heldur velli í skoðanakönnun Gallups
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland vinnur

rimsmile Ef þessi keppni væri milli þjóða myndi Ísland vinna...það hlýtur að vera þannig..allavegana miðað við hina landsþekktu höfðatölu að við sendum flest sms...og svo erum við svo stressuð þjóð og megum aldrei vera að neinu...þess vegna erum við svo ogissslega fljót að skrifa sms. Áfram Ísland
mbl.is Keppt í SMS-sendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verka Nótt

Það styttist í Eurovison fjörið........Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að Verka Skedduskæja sé Silvía Nótt í dulargervi. Áfram Úkraína
mbl.is Dragdrottning veldur Evróvisíóndeilu í Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldardagskrá

Halldór Bragason og hans fólk á lof skilið fyrir að skipuleggja og halda blúshátíð sem þessa. þetta er vel skipulögð hátíð sem stendur undir nafni. Dóri á líka lof skilið fyrir að kynna blúsinn víða um land, kenna börnum og flytja blússtjörnur til landsins. Allir á BLÚSHÁTÍÐ


mbl.is Blúshátíð í Reykjavík aldrei umfangsmeiri en nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband