Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
Fyrir viku síðan fengum við Gréta góðan hóp í kvöldmatarboð, þetta voru Friðrik V. og frú, Hallgrímur Yfirkokkur á FV. og frú og Finnbogi ljósmyndari og frú. Ég ákvað að gera tilraunir og búa til nýja rétti sem ég hafði ekki prófað áður....alltaf gaman af áskorunum.
Ég hafði áður sent snillingunum hjá Vífilfelli matseðilinn og lét þá velja vínin með matnum, það heppnaðist mjög vel..mmmm.
Í fordrykk var boðið uppá ferskt og sætt freyðivín ...mjög gott. Fyrsti réttur vatnsdeigsbolla, fyllingin: Þeyttur rjómi og í hann var blandað hrært avacado, lime safi, og mixaður hvítlauksristaður humar með steinselju. Með fyrsta og öðrum rétti var drukkið hið skemmtilega og afar ljúffenga Leon Beyer Riesling 2007 passaði mjög vel við.
Annar réttur: Sushi platti með 5 bitum, fyrir miðju var Nigiri með túnfiski, bleikju og þorski og síðan voru þrír bitar Maki rúllur, einn með surimi krabba,annar rúllaður með sojablaði og innhélt léttsaltaðan saltfisk kryddaðan með Kerlingareyra ( Íslenskt þarakrydd ) þriðji rúlla með Tatchiki túnfisk ofan á, síðasti bitinn var kúla, grjón, birkireyktur lax, gúrka og graslaukur.
með þriðja rétti var drukkið Morande Sauvignon Blanc 2007 Þriðji réttur Smjörsteiktur smokkfiskur (Snilldarsmokkfiskur frá Sigga á
móti)með mandarínuolíu, Kiwi og Marokkógrjónum.
Fjórði réttur: Léttsaltaðir þorskhnakkar frá O. Jakobsson, einstakt hráefni. Fiskurinn settur í ofn í 5 - 7 mín penslaður með góðri ólífuolíu, borinn fram með grófu salsa: Tómatar bátaskornir, basilíka, steinselja, góð olía, furuhnetur smátt skorinn hvítlaukur og örlítið salt þessu blandað saman og látíð bíða í ísskáp í 1 klst. Réttinn bar ég fram á þessum gullfallegu og skemmtilegu K glersdiskum frá Siggu og Bjössa ( Stjarnan.net) Fimmti réttur. Þennan rétt kallaði ég "með tvo til reiðar" ...hestur á þrjá vegu. Ég sauð við vægan hita góðan vöðva af reyktu folaldi og skar hann til í fallega teninga, þeir voru svo bornir fram í skál með grænmetiskremi: soðnar rófur, gulræt
ur, kartöflur og sætar kartöflur sett í matvinnsluvél með smá soði bragðbætt með örlitlu salti, Agave sírópi og múskati, kremið sett i botninn á skálinni, bitunum raðað ofan á og hrá rófa rifinn yfir...ath borðað með skeið. 100 gr biti af hrossalund, létt saltaður og pipraður og djúpsteiktur í deigi með LAVA 9,4 prósent mjög dökkum bjór frá Ölvisholti, borinn fram með olíu og salti og sítrónu, að lokum teryaki marineraður hálf hrár biti (Kaldur) af hrossafillet, borinn fram með ferskri fíkju. ( Myndin tekin eftir að byrjað var á réttinum) Með saltfiskinum og hestinum var drukkið mjög gott rauðvín Morande Merlot Grand Reserve . Það má sannarlega mæla með öllum þessum vínum frá Vífilfelli enda gestirnir sem kunna sitthvað fyrir sér mjög ánægðir. Þess má geta að freyðivínið sem við drukkum í fordrykk var hugsað með eftirréttunum en þar sem hér var til flaska sem undirrituðum
áskotnaðist á Michelin veitingastað á Ítalíu vegna gorms sem fannst í matnum, þar sem að sumir í þessu matarboði voru viðstaddir á Ítalíu og ég búinn að lofa að hún yrði ekki opnuð nema að þeim viðstöddum og við gott tækifæri...nú var komið að því og mér fannst rétt að hafa þetta úrvals Marsalavín með eftirréttinum ( Vonandi fyrirgefa Vifílfells menn mér :) ) breytinguna. Eftirréttirnir:
Djúpsateiktur banani í Panko raspi með rjóma og karmellusósu og síðan Semi Freddo (Ís) með gráfíkjum...mjög gott....og kaffi með. Það er mjög skemmtilegt að fá áhuga og atvinnufólk í matreiðslu í mat til sín, elda og spjalla...algjör snilld. Þetta var
skemmtilegt kvöld með skemmtilegu fólki. Eftir að eftirétturinn hafði runnið ljúflega niður. Báðu gestirnir um orðið og þá hófst þvílíka gjafaflóðið og ég var svo heppinn að vera leystur út með ALVÖRU kokkagalla merktum mér...Já sæll.......ekki nóg með það heldur fengum við ógeðslega flotta K glers sushi diska (Siggaog Bjössi), Halli kokkur fékk bók, Finnbogi gamla raritet vínilrokksafnplötu, stelpurnar snyrtibuddu með einhverju dúlleríi í og já við fengum að auki frá Finnboga stórsúpupottatröppu og hvítvín frá Halla...segiði svo að jólin séu ekki allt árið....enda var mjög jólalegt um að litast fyrir utan gluggan......svo var sest til stofu með ískaldan Viking gylltan og áttum þar gott spjall um allt nema pólítik..yndislegt.
P.s Ég er búinn að bíða með þokkalega langa færslu sem er nokkurskonar matardagbók s.l rúmlega tveggja mánaða...vonandi er hún á næsta leiti og að lokum vil ég þakka öllum sem hafa haft samband og ýtt á mig við skriftirnar hér...já og skammað mig fyrir letina....ég verð að bæta mig :)
Matur og drykkur | Mánudagur, 16. mars 2009 (breytt kl. 14:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Maí 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir