Kannski verður maður keyptur

Nú verð ég að vanda mig er ég rita mitt fyrsta blogg hér á nýjum stað. ( Hljómar eins og í texta í lagi með Sálinni) En þá er ég aðallega að hugsa um að ef mér tekst vel til þá gæti að ég lenti í sama potti, lukku eða ólukku og sumir ónefndir. Bloggheimurinn er kannski að verða eins og fótboltinn, menn eru keyptir sparkaðir niður eða fá að vera á bekknum allt eftir getu og tengslum.
Það má kaupa núna og ég bíð spenntur.

Það var sérstök uppllifun sem ég og fleiri Dalvíkingar upplifðum í gærkvöldi. Aldrei þessu vant var ég kominn snemma upp í rúm, vann örlítið í tölvunni og framundan var TV night. Vinur minn hringdi, honum var mikið niðri fyrir, það óð á honum og hann bað mig að líta út um gluggann...ég dröslast á fætur og viti menn á lóðinn i hjá Stebba í Brimnesi var sérsveitarmaður með alvæpni, lögreglu bílar lokuðu fjórum götum...what ...jú þetta var rétt ég var ekki byrjaður að horf á Tvíið, þetta var raunveruleikinn fyrir utan eldhúsgluggann hjá mér. Maður fæddur 1965 sem var nýfluttur til Dalvíkur, hafði hringt á lögreglu og sagst vera með byssu og hótaði að skjóta á allt og alla...hús voru rýmd, fólk fékk ekki að fara til síns heima í næsta nágrenni, fólk beðið að halda sig frá gluggum og spennan var í hámarki. Samningamenn náðu að tala kauða til og hann opnaði fyrir þeim, óvopnaður og feginn að einhver svaraði kallaði hans um hjálp. Ég verð að segja það að sérsveitarmennirnir og lögregla stóðu sig afar vel.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Satt segirðu Júlli... manni stóð ekki alveg á sama þegar maður leit út um gluggann og sá að lögreglubíll var búinn að parkera fyrir framan bílastæðið okkar og maður vissi hvað var í gangi. CSI Miami hvað... hvernig væri að fara að framleiða CSI Dalvík hehe;)

Maja (IP-tala skráð) 18.1.2007 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband