Áfram Ísland....Áskorun til þín...Bros og knús í hvert hús.

husbrosHver fréttin á fætur annarri dynur á okkur og ekki vitum við öll ef nokkur hvað þær þýða, þetta gerist hratt og erfitt er að halda þræði. Við verðum að vona og treysta því að það sé verið að gera rétt eða það besta í stöðunni á hverjum tímapunkti. Mér finnst mikilvægt að í þessari yfirlýsingu sé minnst á að sú vinátta eins og það er kallað við breta sé haldið á lofti. Í bloggpistli í morgun hvatti ég fólk til að vera jákvætt og gefa hvert öðru knús og svo framvegis, það stendur heldur betur enn og nú þurfum við að gera enn betur. Hér með skora ég á alla BLOGGARA landsins að taka þátt í að koma örlítilli jákvæðnibylgju af stað, skrifum jákvætt, hvetjum hvert annað, sjáum björtu hliðarnar, þær eru margar. Við þurfum að hugsa um hvert annað, gefa knús og þjóðin þarf svo sannarlega á því að halda, notum þennan miðil sem bloggið er og leggjum þjóðinni lið. Neikvæðnin má ekki ná tökum á okkur þá fyrst fer að halla verulega undan fæti. Jákvæðni og knúsblogg nú skipta þau máli....getur þú að bloggað jákvætt, skoraðu einnig á bloggvini þína ? Leggjum okkar af mörkum og árangri við munum ná. Bros og Knús í hvert hús og Áfram Ísland


mbl.is Eignir standi undir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ánægð með þig. Það er jákvæðnin og bjarsýni sem blífur núna.

 Knús til þín

Heiða (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 15:39

2 Smámynd: Líney

Knús  til þín Júlli minn og tek undir orð þín

Líney, 8.10.2008 kl. 15:46

3 Smámynd: Anna Guðný

Heyr heyr stend með þér

Hafðu það gott

Anna Guðný , 8.10.2008 kl. 17:31

4 identicon

Bros og knús í hvert hús - já það er sko nauðsynlegt Júlli minn - lööööngu búin að blogga jákvætt - þetta eru svo skrítnir tímar sem við lifum á - þar sem alls kyns gerviþarfir ráða ríkjum svo nú ríður á að fólk átti sig á alvöru þörfum sínum og sinna.

Sendi þér og þínum knús og faðmlag - þín Ásalauga í Danaveldi.

Áslaug og strákarnir (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 18:19

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Bros og knús, líst vel á þig!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.10.2008 kl. 19:41

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 8.10.2008 kl. 21:22

8 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Knús á þig kall fyrir rétta hugarfarið :)

Hólmgeir Karlsson, 8.10.2008 kl. 22:10

9 Smámynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Knús knús

Rúnar Haukur Ingimarsson, 8.10.2008 kl. 22:53

10 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Já!  Akkúrat Júlli!!!

Knús á þig fyrir jákvæðni og gott hugarfar!!!

Það er það sem gildir á þessum síðustu og verstu...brosa og knúsast endalaust!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 8.10.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband