Prik miðvikudagsins

Það hefur verið frábært að sjá við um bloggið hve mergir hafa tekið áskorun um að gefa prik og taka þar með þátt í prikavikunni. Það væri líka hægt að hafa það reglu að til að fá að hafa blogg verði maður að skrifa eitthvað jákvætt einu sinni í viku...ég segi bara svona. Wink

Prik dagsins í dag fá:

Lögreglan á íslandi, sem stendur sig oftast vel, sem er hér fyrir okkur og leggur oft mikið á sig í erfiðri vinnu sem fæst af okkur þekkja. Þó við séum ekki alltaf sammála um aðgerðir eða aðferðir þá verðum við að hugsa jákvætt til þeirra. Við vitum aldrei hvenær VIÐ þurfum virkilega á henni að halda...og við við viljum að hún sé til staðar þegar við hringjum eða köllum eftir hjálp.

hafið góðan dag.......og ekki spara knúsin.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég hef aldrei mætt öðru en hjálpsemi og hlýlegheitum frá lögreglunni, kom nokkrum sinnum fyrir á meðan ég rak gistiheimilið, að ég  neyddist til að kalla á þá. Meira að segja þegar ég fór til þeirra til að játa á mig glæp... eða svoleiðis... ég bakkaði á bíl og fann hvergi eigandann, þá gáfu þeir mér kaffi og pönnukökur og hældu mér fyrir að láta vita....  Mér datt bara ekki í hug nein önnur aðferð til að finna þann sem átti bílinn  Njóttu dagsins 

Jónína Dúadóttir, 7.5.2008 kl. 08:57

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þeir hafa nú reynst mér og mínum misvel, enda mál misjafnlega erfið, en samt svona yfir heildina get ég tekið undir þetta hjá þér. Er ekki brjáluð blíða hjá þér.???

Ásdís Sigurðardóttir, 7.5.2008 kl. 12:43

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir þessa góðu hugmynd Júlíus.  Ég hef lagt mig alla fram við að finna þetta jákvæða í kringum mig síðustu daga og gengið bærilega.

Mitt prik í dag fengu frumkvöðlar vestur á fjörðum: www.fisherman.is

Sigrún Jónsdóttir, 7.5.2008 kl. 17:13

4 identicon

Prik dagsins fær starfsfólk og eigendur Norðurstrandar á Dalvík fyrir nýju vinnslulínuna. Svaðaleg græja.

Addi E (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 19:36

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

knús frá steinu sem er sólarmegin í lífinu

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 06:06

6 identicon

Prik vikunnar fá dønsku vedurgudirnir :)

Holli (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband