Menn sem leggja lag sitt við fé

girdingÉg tel að þrátt fyrir "ástandið" svokallaða í fjármálaheiminum, þá sé nú gott að gleyma því um stund áður en að við verðum galin...þetta er hrútleiðinlegt......og hvað er þá betra en að hugsa um mat og þá til dæmis hið bráðfallega og stórgóða lambakjet. Um helgina halda Borgnesingar bráðskemmtilega hátíð "Sauðamessu" dagskrá og margt annað skemmtilegt má sjá á vefnum þeirra. Þar verður ærleg skemmtun og m.a verður landsmönnum öllum boðið í kjötsúpu, keppt verður í sparðatíningi og margt fleira. Tilvalið að skalla sér á Sauðamessu með lögunum, éta kjet og enda svo skrallið á hlöðuballi innan um æringja og önnur leg s , langt í burtu frá tali um fjármálakreppu sem er í raun bara skortur á sauðfé. Ég minntist á að skella sér með lögunum á Sauðamessu, samkvæmt orðabók Sauðamessunnar þá er félagi - maður sem leggur lag sitt við , hvort sem er átt við fjárbændur í uppsveitum Borgarfjarðar eða menn í hinum dökka og illræmda fjármálaheimi..þá er um að gera að fara varlega þegar val á lögum fer fram og ekki draga menn í dilka eftir útliti eða bankastofnunum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 2.10.2008 kl. 09:51

2 identicon

Og þetta þorir hrútabaninn sjálfur að skrifa!!!!

Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 15:03

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hahaha einmitt nauðsynlegt að muna að brosa þessa dagana

Ragnhildur Jónsdóttir, 2.10.2008 kl. 19:19

4 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Æi, þessir pólitíkusar eru soddan sauðskepnur blessaðir. Mig langar í kjötsúpu!

Ylfa Mist Helgadóttir, 3.10.2008 kl. 17:32

5 identicon

Gaman að sjá þig í síðustu viku.  Má ekki líða svona langt á milli.

Blíðar heilsur til familien.

Vala

Vala (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matarsíða áhugamannsins

Blogg um mat og drykk í sem víðustum skilningi.

Áhugamaðurinn

Júlíus Garðar Júlíusson
Júlíus  Garðar Júlíusson

Um síðuna

Nýjustu myndir

  • iStock 000014807979XSmall
  • iStock 000019931963XSmall
  • iStock 000018872168XSmall

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hvað borðar þú fisk oft í viku

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband