Þann 26. mars s.l kom Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ásamt fylgdarliði í óvænta stutta heimsókn til Dalvíkur. Ég var beðinn um að elda fyrir hann og gesti samtals 20 manns í hádeginu..já sæll...ég sagði já um leið og var að sjálfsögðu upp með mér að fá þessa beiðni...skemmtilegt að vera áhugamaður og geta sagst hafa eldað fyrir forsetann. Það var stuttur tími til stefnu og það þurfti að huga að matseðli og ekki nóg með það heldur einnig með hvað hætti þetta væri gert því það var tekin ákvörðun um að þetta yrði á kaffistofunni í fiskhúsi hér í bæ hjá O. Jakobsson , ekkert dúkað upp eða neitt svoleiðis, bara heimilislegt og sem eðlilegast. Mjög skemmtilegt fyrir utan að það er engin aðstaða til eldunar og engin áhöld eða borðbúnaður, þannig að ég þurfti að hugsa þetta út frá því og einnig tímanum sem hann hafði. Það varð úr að ég ákvað að hafa einn kaldan disk með nokkrum réttum á og vetrarfiskisúpu með brauði og kaffi og konfekt á eftir. Veðrið var ekta norðlenskt þennan dag, hríð úti og snjór á gluggum alveg eins og það á að vera. Það var ræs kl 6 og Eiður Máni 9 ára sonur minn var kominn á fætur rétt á eftir mér til að hjálpa, þannig að hann flysjaði gulrætur þar til að hann þurfti að fara í skólann ( Tjáði mér það að hann vildi nú frekar vera heima og elda fyrir forsetann heldur en að fara í skólann). Þar sem að aðstaðan var ekki mikil í fiskhúsinu þurfti ég að elda allt heima og pakka og flytja það þangað. Þar sem við settum köldu réttina á alla diska þurfti pláss til að gera það, inni á lofti í fiskhúsinu er borð sem passaði fyrir alla diskana, þannig að þetta var skemmtilega öðruvísi að búa til mat og setja á diska fyrir forsetann uppi á lofti við íslenskar aðstæður....enda er áríð núna 2009...ekki 2007. Þar sem að þetta var að morgni og allir í vinnu var erfitt að finna einhvern til að hjálpa en það hafðist allt saman, Gréta konan mín er kennari og fékk að skjótast í viðverutíma til að aðstoða mig á loftinu góða sem betur fer, en þetta hafðist allt saman þegar gestirnir komu í hús var ég rétt búinn að raða á diskana og nokkrir gestanna gripu diska með sér fram í kaffistofunamargar hendur vinna létt verk. Helga og Agnes frá O. Jakobsson aðstoðuðu við að leggja á borð og fleira. En að matseðlinum, ég ákvað að hafa hann heimafenginn sem sagt matur úr Dalvíkurbyggð. Lomos saltfisksteik frá Ektafiski á Hauganesi, léttsaltaður saltfiskur frá O. Jakobsson, steinbítur frá Norðurströnd og Dagmanni, þorskur og rækjur í súpuna frá Samherja, rúgbrauð bakaði sameiginleg frænka okkar Ólafs Ragnars, Herborg sem er skyld mér í móðurætt og Ólafi í föðurætt, ég var einnig búin að biðja Önnu Dóru á Klængshóli um að baka fyrir mig fjallagrasabrauð með súpunni en hún lagðist í flensu kvöldið áður, þannig að ég fékk nýbökuð súpubrauð hjá stelpunum í Samkaup. Á kalda diskinum var rúgbrauð með steinbítsplokkfiski með ólífum, dilli og góðri kaldpressaðri ólífuolíu, saltfiskur frá Ektafiski, með sesam ogdöðlu rótargrænmeti, léttsaltaði þorskhnakkinn frá O. Jakobsson með ferskum Mozarella, tómötum, basil, hvítlauk og olíu. Saltfiskinn x2 setti ég í stutta stund í ofn, penslaða með olíu og örlítið af svörtum pipar úr kvörn á fiskinn frá Ektafiski. Með var látlaust salat, fetaostur, íssalat, gúrka og paprika. Drykkir:pilsner frá Viking, sítrónutoppur og vatn úr fiskhúskrananum. Ég gerði nýja útgáfu af uppskriftinni minni úr bókinni "Meistarinn og áhugamaðurinn" Vetrarfiskisúpa Dalvíkingsins, kröftug súpa með bleikju, þorsk og rækju. (Náði ekki nógu góðri mynd af súpudisk, en set eina sem ég tók ofan í pottinn. Forsetinn og gestir voru í skýjunum með þessa hádegisstund á kaffistofu O. Jakobsson og dásömuðu allan matinn, þannig að ég er einnig í skýjunum og meira en það. Þegar allir voru orðnir vel mettir var boðið uppá kaffi og konfekt, ég ákvað að koma ekki með neina bolla heldur nota þær kaffikönnur og bolla sem voru til á staðnum, allir þekkja hvernig þetta er á kaffistofum, vel notaðar könnur og bollar með sál og sögu og nánast engin eins. Ein kannan var merkt Man Utd ég rétti forsetanum hana, því að í skólanum um morguninn höfðu börnin spurt forsetann með hvaða liði hann héldi í enska boltanum og auðvitað heldur hann með rétta liðinu. Að lokum færði ég forsetanum áritað eintak af "Meistarinn og áhugamaðurinn" og DVD diskinn um Fiskidaginn mikla sem forsetinn er mjög hrifinn af. Þetta var virkilega skemmtilegt og er öllum sem aðstoðuðu með hráefni, lán á búnaði og fleira hér með þakkað fyrir.
Flokkur: Matur og drykkur | Sunnudagur, 5. apríl 2009 | Facebook
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Af mbl.is
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir
Athugasemdir
Þetta hefur verið gaman, alltaf gott þegar vel gengur..........
Sigurveig Eysteins, 6.4.2009 kl. 02:44
Flottur!
Ánægður með þig, þó svo að álit manns á forsetanum sé ekkert gríðarlegt, þá er flott að hafa það á sínu persónulega CV að hafa eldað fyrir forsetann og fylgdarlið :)
Snorri Kristjánsson (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.