Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Astrópía afhjúpuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Föstudagur, 25. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga.
Sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
Djörfung til að mæla gegn múgsins boðum,
Manndóm til að hafa eigin skoðun.
Það þarf viljastyrk til að lifa eigin ævi,
Einurð til að forðast heimsins lævi,
Visku til að kunna að velja og hafna,
Velvild ef að andinn á að dafna.
Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir verða að taka
Og enginn tekur mistök sín til baka.
Því þarf magnað þor að vera sannur maður,
Meta sinn vilja fremur en fjöldans daður,
Fylgja í verki sannfæringu sinni,
Sigurviss, þó freistingarnar ginni
Árni Grétar Finnsson
Bloggar | Miðvikudagur, 23. maí 2007 (breytt 24.5.2007 kl. 13:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stal bíl og ók austur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Þriðjudagur, 22. maí 2007 (breytt kl. 15:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er fæddur 020266 - síminn er 4661022 - ég á heima í Karlsrauðatorgi 26 - póstnúmerið á Dalvík er 620 - Þegar ég bjó í Rvík átti ég heima í Drápuhlíð 22 - ég fór í búðina áðan og það kostað 622 krónur´ - ég er með miða í höndunum frá fatahreinsuninni og á að ná í föt þangað í dag 22. og miðinn er númer 1622 - í sðiustu viku fór ég inn í símann á Akureyri og fékk biðnúmer og það var númer 662.......og rétt í þessu var ég að taka upp póst frá Slow food samtökunum, þar sem ég var að fá skírteinið mitt og viti menn ég er íslenskur meðlimur númer 26.
Ég get haldið áfram þetta er bra svona það sem er núna - ég er að skoða lóð og hún er númer 20.
Bloggar | Þriðjudagur, 22. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Verst að ég missti af San Francisco ballettinum á verkum Helga Tómassonar .......en ég er nú nýkominn af góðri sýningu á Ítalíu og þarf ekki að kvarta.
Ítalía Slow fish 2007.
Ég sit í stjórn Matur úr héraði - Local food sem er afsprengi Vaxtasamningsins.
Slow Food samtökin eru kunn meðal margra sælkera, en samtökin voru stofnuð árið 1986 á Ítalíu, er valinkunnum matmönnum þar í landi fór að ofbjóða innreið skyndibita menningarinnar til landsins. Meginmarkmið Slow Food er að stuðla að og vernda bragðgæði og matarmenningu, hvar og hvernig sem þau birtast. Slow Food hefur einnig að markmiði að miðla þekkingu og auka ánægju fólks af neyslu vandaðra matvæla og sporna gegn skyndimenningu sem ráðandi afls í matvælaframleiðslu. Slow Food eru grasrótarsamtök sem starfa í gegnum alþjóðlegt net, með höfuðstöðvar í Piemonte á Ítalíu. Samtökin hafa einnig beitt sér opinberlega gegn útrýmingu ýmissa matvæla, dýrastofna, osta, skinku, villtra jurta og kryddtegunda, korns, ávaxta og svo má lengi telja.
Um miðjan fimmtudaginn 3. maí lentum við á Malpenza flugvellinum rétt fyrir utan hátískuborgina Mílanó. Um kvöldið áttum við pantað borð á stórglæsilegum veitingastað í Milanó og það var ekki laust við að spenna væri komin í hópinn. Umræddur staður er í eigu og hannaður af Dolce & Gabbana og ber hann heitið Gold. Staðurinn er meira og minna úr gulli, stólfætur, gardínur og stigaþrep úr 24 karata gulli, salernið og allt þar innan dyra einnig, meira að segja sjónvarp við hverja dollu. Við fengum 6 manna borð á besta stað, í hópinn höfðu bæst við Freyja dóttir Ólínu sem er skiptinemi á Ítalíu og Hanna Friðriksdóttir sópransöngkona og matarblaðamaður Morgunblaðsins og umsjónarmaður www.matarlist.is.
Friðrik V. hafði haft með sér fullan frauðkassa af spennandi hágæða norðlenskri vöru, saltfisk , mysuost, humar, reyktan lax, lambakjöt, krydd og skyr. Friðrik fór með kassann inn í eldhús til kokksins sem hann þekkti til. Giacomo Gallina er einn af fremstu matreiðslumeisturum Ítalíu. Á Gold er ítölsk matargerðarlist í hávegum höfð. Giacomo leggur mikið upp úr því á Gold að allt hráefni staðarins sé sérvalið og aðeins það besta úr öllum héruðum Ítalíu. Auðvitað leynist einstaka erlent hráefni á seðlinum, saltfiskurinn kemur t.d. frá Íslandi. Hvort sem það var innihaldi kassans góða að þakka að við fengum einstaka 10 rétta máltíð með frábærri þjónustu þetta kvöld skiptir ekki máli, stundin var ógleymanleg. Como útskýrði fyrir okkur réttina og að auki var hrein unun að sitja til borðs með Friðrik V. og hlusta á hann fræða okkur um Ítalska matargerð og mat almennt, ekki skemmdi fyrir að óvænt var okkur boðið inn í eldhús.
Friðrik V, Adda konan hans og þeirra fólk eru að opna nýjan veitingastað og sælkerabúð í gilinu á Akureyri. Það verður spennandi og frábært að geta komið í sælkerabúð með frábærri vöru og fengið fróðleik með, nýji staðurinn mun lyfta Akureyri, Eyjafirði á enn hærra plan , jafnt sem ferðamannastað sem gourmet stoppistöð. Fylgist með hvenær þau opna nýja staðinn á www.fridrikv.is
Dagur 2.
Við ákváðum að taka göngutúr um Milanó áður en að við tækjum lest til Genoa. Fyrsta verk okkar var að kaupa regnhlíf, það helli rigndi flestum Ítölum til mikillar gleði eftir mikinn hita og þurrk vikum saman. Við sungum bara mér finnst rigningin góð og nutum stemmningarinnar. Við vorum komin til Genoa um miðjan dag og eftir að hafa skráð okkur inn á ágætt hótelið, lá leiðin í ráðstefnu og sýningarhöllina sem var niður við sjó. Við tókum hring sýningunni sem var afar áhugaverð og sérstaklega það að þarna voru framleiðendur mættir sjálfir á staðinn með, krydd, olíur, osta og fisk svo eitthvað sé nefnt. Um kvöldið snæddum við á heimilislegum stað sem tók c.a. 20 manns í sæti, pasta, fisk og sæta eftirrétti. Friðrik V. bannað okkur alltaf að panta sama rétt og hinir, allt til þess að við sæjum og smökkuðum sem flesta rétti, góð hugmynd og skemmtileg. Á sumum stöðum létum við svo koma okkur á óvart.
Matarmenning Ítala er algjör snilld og það er ljóst að þeir plöntuðu litlum matar Amor í mitt hjarta. Líkt og allar góðar máltíðir hefst sú ítalska á forrétti. Ítalir setja gjarnan upp hlaðborð af litlum, fjölbreyttum réttum. L'Antipasto hefur þann tilgang að vekja bragðlaukana og skapa eftirvæntingu fyrir því sem á eftir kemur. Á eftir forréttarhlaðborði kemur "il primo" eða fyrsti réttur. Fyrsti réttur er yfirleitt pasta, matreitt eftir sið hvers héraðs fyrir sig. Ferskt fyllt pasta, tagliatelle eða spaghettiréttir eru algengir fyrstu réttir á Ítalíu. Þar á eftir kemur"secondi piatti" eða annar réttur sem er oftast kjöt eða fiskréttur. Að þessu loknu koma desertar og líkjörar. Bitterar á borð við Averna, eru mjög vinsælir eftir mat, einnig Grappa. Öll samsetning máltíðarinnar á að miða að því að þér líði vel. Röð réttanna, hvað er borðað fyrst, hvað er borðað síðast, er hagað með það markmið í huga að jafnvægi ríki og samræmi sé í gegnum alla máltíðina.
Dagur 3.
Dagurinn var tekinn snemma á sýningunni, það var komin röð um klukkutíma fyrir opnun. Í röðinni spjölluðum við við gesti af ýmsum þjóðernum, kynntum Ísland, Eyjafjörðinn, Fiskidaginn mikla og náðum mikilli athygli með því að gefa liðinu harðfisk sem ég hafði með að heiman, frábæran fisk frá dótturfyrirtæki Norðurstrandar hér á Dalvík. Er við komum inn kom til okkar fréttakona og þáttagerðastjórnandi frá CNN og myndaði og spjallaði við okkur. Í hádeginu snæddum við 5 rétta fiskmatseðil á sýningunni sem var allur úr sama héraði, ítölsku héruðin voru með pláss fyrir nokkurskonar veitingahús. Dagurinn leið fljótt í kynningum á mat, vínum, ræktun, verndun, vinnsluaðferðum og fleira, afar áhrifaríkt og fróðlegt. Einnig kynntum við okkur hvernig sýningin var sett upp og með það í huga hvað við í Matur úr héraði Local food gætum nýtt okkur fyrir sýninguna Maturinn 2007 sem verður á Akureyri í október n.k.
Um kvöldið áttum við pantað borð á Michelin veitingastað. Með okkur þetta kvöld var Eygló B Ólafsdóttir markaðsstjóri Sacla á Ítalíu sem hafði reddað okkur borðinu. Stórkostlegur matur, þjónustan óaðfinnanleg og fróðleikurinn sem fylgdi kvöldinu innihaldsríkur og skemmtilegur. Við ræddum hugmyndir um tengsl Eyjafjarðar við sjávarhéruð á Ítalíu sem mönnum leist vel á, alltaf kom Fiskidagurinn mikli upp í þessari umræðu og var ákveðið að við myndum hitta þekktan Ítalska Michelin stjörnu kokk daginn eftir, Filippo Volpi. og m.a. að ræða við hann um að koma til Íslands á Fiskidaginn mikla og hann yrði síðan gesta kokkur á nýja staðnum hjá Friðriki V. í vikunni á eftir. Einnig veltum við fyrir okkur nokkurskonar Ítalíuþema sem hefðist á Fiskidaginn mikla og endað á matarsýningunni Maturinn 2007 á Akureyri í október n.k.
Dagur 4.
Byrjuðum daginn snemma eins og alla dagana í ferðinni, nú var borinn sólarvörn á kroppinn og farið í göngutúr um Genoa og niður að höfninni. Skoðuðum m.a. sjóræningjaskip sem var leikmynd úr kvikmynd eftir Roman Polanski. Við vorum komin á ráðstefnusvæðið um hádegi. Hlýddum á tvo fyrirlestra um vatnafiska, verndun stofna, vinnslu aðferðir og fl.. Síðan hittum Fillippo Volpi og kynntum þær hugmyndir fyrir honum er ræddar höfðu verið kvöldið áður. Hann var mjög hrifinn og spenntur fyrir því að mæta á Fiskidaginn mikla og vera gestakokkur dagsins.Þessi dagur á sýningunni var okkar síðasti þar sem stefna var sett á fiskiþorpin fimm daginn eftir. Um kvöldið höfðum við ákveðið að fara á ekta Ítalskan flatbökustað sem við og gerðum en urðum fyrir miklum vonbrigðum og er ég , þó ég segi sjálfur frá miklu hrifnari af mínum eigin flatbökum.
Dagur 5
Lestin fór snemma til Cinque Terre, sjávarþorpanna fimm sem eru á heimsminjaskrá Unesco, Monterasso, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore. Við vorum komin í fyrsta þorpið um kl 9 í um 30 stiga hita, dásamlegt þorp og okkur langaði bara til þess að vera þar. Við sigldum yfir í annað þorpið en gengum á milli hinna þriggja, gangan var á köflum eilítið á fótinn og strembin í hitanum, en við vorum fljót að gleyma því þar sem að þessi þorp eru himnaríki á jörðu. Húsin er byggð utan í og ofan á klettunum og eru afar falleg og umhverfið ógleymanlegt. Það er sérstök stemning í þorpunum. Flestir eiga litla báta, fara út á morgnana að veiða, koma heim með ferskan aflann og hann fer m.a beint á veitingahúsin sem eru nokkur í hverju þorpi. Við snæddum fiskihlaðborð í Corniglia. Á hlaðborðinu var m.a. krabbi, skelfiskur, humar, smokkfiskur, rækjur og 3 5 tegundir sem ég kann ekki að nefna. Þetta var eftirminnilegur dagur og mikið af hugmyndum sem kviknaði við þessa heimsókn.
Á sunnudögum eru sjómennirnir í fríi og fiskveitingahúsin því flest lokuð á mánudögum, veitingahúsin bjóða bara uppá ferskan fisk, ekki frosinn. Með þessa vitneskju í farteskinu lá leiðin á veitingastað þar sem kjöt var á matseðlinum, enda var alveg kominn tími á feita steik. Við enduðum á mögnuðum stað þar sem slátrarinn var á staðnum í öllu sínu veldi og með öll sín tól. Við horfðum á hann skera og handfjatla kjötið sem við pöntuðum, ég get sagt ykkur að þetta voru engar smásteikur og eina kölluðum við m.a skjalatöskuna. Þetta var góð kvöldstund eftir langan og góðan dag. En allt tekur enda og eftir matinn voru ekki nema nema 4 tímar það að við þyrftum að vakna til þess að taka taxa í 2 tíma á flugvöllinn, 2 tíma flug til Hollands, og 3 tíma flug til Íslands, 45 mín í bíl til Reykjavíkur, 50 mín flug til Akureyrar og að lokum í okkar bíl í 30 mín til Dalvíkur. Samtals 16 tíma ferðalag með bið.
Þetta var mögnuð ferð með frábærum ferðafélögum, en umfram allt var hún árangursrík. Ég vil færa Vaxtasamningunum og hans fólki þakkir fyrir að bjóða mér og einnig fyrir góðan árangur, það er von mín að það verði skrifað undir nýjan samning um þau klasaverkefni sem hafa sprottið upp vegna Vaxtasamningsins. Það er einnig ljóst að ef Fiskidagurinn mikli stefnir á að markaðssetja sig erlendis þá er áhuginn til staðar. Möguleikar okkar hér í Eyjafirði á tengslum við héruð eða þorp á Ítalíu eru fyrir hendi. Allan tímann var ég með heilmikla möppu með mér sem var með myndum og upplýsingum um Fiskidaginn mikla og bæklingum um Dalvíkurbyggð. Fiskidagurinn mikli vakti mikla athygli, mappan góða endaða síðan hjá Veroniku sem er tengiliður Slow food samtakanna við norðurlöndin og Þýskaland og það er aldrei að vita hvað út úr því kemur.
P.s Friðrik, Ólína, Freyja, og Gréta Hanna og Eygló líka .ég er til í að ferðast með ykkur aftur og aftur " hvað er betra en góður félagskapur og gott að borða. " ?
Frábær sýning San Francisco-ballettsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Föstudagur, 18. maí 2007 (breytt 3.9.2008 kl. 14:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sagt er að Bandaríkjamaður einn hafi verið staddur við höfnina í litlu sjávarþorpi í Mexíkó. Hann sá lítinn bát koma inn. Einn maður var um borð og margir stórir túnfiskar. Bandaríkjamaðurinn spurði fiskimanninn hve lengi hann hefði verið að veiða þetta. Smástund, var svarið.
Af hverju veiddir þú ekki meira? Ég hef ekkert að gera við meira, sagði fiskimaðurinn, þetta nægir fjölskyldunni minni vel. Hvað gerir þú þá við tímann? Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "siesta" með konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum mínum. Ég get gefið þér góð ráð sagði Bandaríkjamaðurinn. Ég er með MBA frá Harvard. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett upp verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá getur þú ekki lengur búið hér en flytur til stórborgar eins og td. New York. Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn.
Svona 20-25 ár. En hvað svo? spurði fiskimaðurinn.- Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með margar millj.dollara.- Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo? Bandaríkjamaðurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin, tekur "siesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.!!!
Bloggar | Miðvikudagur, 16. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Serbía vann Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Sunnudagur, 13. maí 2007 (breytt kl. 17:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Jæja þá er þetta orðið ljóst, eflaust eru einhverjir orðnir leiðir á West Ham skrifum mínum....en í febrúar er fyrst var farið að skrifa um að þeir myndu falla fékk eg svo sterkt á tilfinninguna að þeir myndu vera áfram í deildinni.
Sjá HÉR
West Ham bjargaði sér en Sheffield Utd. féll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Sunnudagur, 13. maí 2007 (breytt kl. 17:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á svona dögum er mikið um að vera en við megum ekki gleyma fjölskyldunni, börnunum og því sem að þeim snýr. Skelli hér inn 5 boðorðum fyrir daginn í dag.
1. Nýttu þér atkvæðisrétt þinn, hann er mikilvægur.
2. Sendu unglingnum þínum sms " Mér þykir vænt um þig"
3. Gefðu að minnsta kosti 5 knús í dag.
4. Fylgdu hjartanu í öllu sem þú gerir í dag.
5. Eyddu kvöldinu með fjölskyldunni " Eurovision fjölskyldupartý
Búið að opna kjörstaði um allt land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Laugardagur, 12. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég sagði fyrir keppnina í gær að ef að við kæmumst ekki áfram núna þá væri þetta vonlaust og skipti ekki máli hversu lagið sem við sendum væri gott eða flytjandinn frábær, fyrirkomulagið er bara ekki rétt burtséð frá því hvort að það sé verið að plotta eitthvað eða ekki. Annað sem ég var að hugsa um afhverju það væri svona ódýrt fyrir okkur hér á Íslandi að greiða atkvæði í keppninni, 99 krónur....væri ekki eðlilegt að þetta vær svona 500 kall eða svo
Það er svo mikið um að vera þessa dagana í fréttum og nóg að blogga um..........kosningar - Eurovision - Knattspyrnan að byrja hér á landi og fleira.
Kosningar:
Í janúar og 25 febrúar skellti ég spám inn á bloggið sjá HÉR ....þær litu svona út.
Sjálfstæðisflokkur 33 %
Samfylking 26%
Vinstri Grænir 17%
Framsóknarflokkur 10%
Frjálslyndir 7%
Framtíðarlandið 4 %
Framboð aldraðra og öryrkja 3 %"
Febrúar spá.
Sjálfstæðisflokkur 32 %
Samfylking 29%
Vinstri Grænir 22%
Framsóknarflokkur 13%
Frjálslyndir 4%
Spá daginn fyrir kosningar 2007
Sjálfstæðisflokkur 35 %
Samfylking 30%
Framsóknarflokkur 14%
Vinstri grænir 12 %
Íslandshreyfing 5 %
Frjálslyndir 4%
Í þessari nýju spá sem er dulítið geggjuð er ég bara að reyna að hafa þetta sem næst því sem að ég tel líklegt að verði lokastaðan en hefur ekkert með að gera beinar skoðanir mínar eða vilja
Skoðanakönnun af síðunni minni
Það hafa 123 tekið þátt í skoðanakönnun sem ég setti upp á síðunni minni þar sem spurt var " Hvað flokk kýst þú aldrei " ? Og þar af leiðandi var best að fá sem fæst atkvæði.
Vinstri grænir 6%
Íslandshreyfing 14%
Samfylking 16%
Frjálslyndir 17 %
Framsókn 21 %
Sjálfstæðisflokkur 26%
Ég vil þakka fyrir hlýleg comment í síðustu færslu og það er von á ferðasögu frá Ítalíu innan skamms.
Eiríkur: Samsæri austantjaldsmafíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Föstudagur, 11. maí 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir