Prikavikan að taka enda :(
Prik dagsins fá nokkrir úr mínu byggðarlagi:
Elvar Reykjalín og fjölskylda hjá Ektafiski og Ektaréttum í Dalvíkurbyggð fyrir mikla elju og dugnað við að koma frábæru hráefni á framfæri. Það nýjasta hjá þeim er algjör snilld Gullkistan, trékistill með óútvötnuðum Ekta saltfiski.
Kaldakempurnar Agnes og Óli í Bruggsmiðjunni á Árskógssandi í Dalvíkurbyggð. Prikið er ekkert endilega fyrir flösku númer milljón eða góðan bjór. Heldur handa þeim sjálfum fyrir að snúa vörn í svaka sókn og trúa á hugmyndina sína.
Bernd á Þverá. Bernd brúðgerðamaður er einstakur listamaður og það er frábært að hafa hann hér í byggðarlaginu okkar. Ég hef verið að benda hópum að fara í heimsókn til hans og fengið miklar þakkir fyrir frá því, fólk kemur brosandi og agndofa til baka.
Góða helgi
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir
Athugasemdir
Svo má líka hafa prikaár eða mánuð
Jónína Dúadóttir, 9.5.2008 kl. 12:13
Frábært framtak Júlli
Þú átt hrós skilið fyrir hvað þú ert hugmyndaríkur og drífandi.
Það á svo sannarlega að hrósa fólki og skemmtilegt að þú gerir það með þessum hætti.
Kannski að við Hólafólk tökum upp svona prikaviku :)
Kær kveðja frá Sauðárkrók/Hólum
Pálína Ósk Hraundal
Pálína (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 12:19
Júlli þetta var frábær hugmynd hjá þér, þessi prikavika. Þakka þér fyrir, það veitir ekki af jákvæðum ummælum og skrifum.
Við höldum samt auðvitað jákvæðninni áfram þó hin eiginlega "Prikavika" sé búin
Bestu kveðjur til þín og þinna
Ragnhildur Jónsdóttir, 9.5.2008 kl. 14:42
Ég var að hlusta á Friðrik Ómar í dag þar sem hann var að segja okkur frá hugmynd og framkvæmd þinni í sambandi við Eurovision, hef trú á krökkunum eins og þú. Kannski skellir maður sér bara norður í djammið. Góða helgi
Ásdís Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 17:19
Flott prikagjöf í dag.....frábært að hafa fólk sem trúir á sjálft sig og svo er hann Bernd brúðugerðamaður alger snillingur, hann hefur komið með sýningar í leikskólann minn og ég hlakka alltaf jafn mikið til að sjá leikritin hans...þvílíkur töframaður sem hann er!
Takk fyrir flotta hugmynd Júlli, þú ert flottur!
Bergljót Hreinsdóttir, 9.5.2008 kl. 17:51
Verð nú að viðurkenna að það liggur betur fyrir mér að tuða! en þetta hefur verið skemmtilegt verkefni og þakka ég þér kærlega fyrir þessa "þraut".
Mun reyna að hafa prikið í huga ca. 1 sinni í viku framvegis...eða mánuði, sjáum til
Bestu Hvítasunnukveðjur norður yfir heiðar
Sigrún Jónsdóttir, 9.5.2008 kl. 23:36
Prik fyrir þig. Luv að vestan.
Drottningin
Ylfa Mist Helgadóttir, 12.5.2008 kl. 18:24
Frábært þetta framtak hjá þér með prikavikuna það mættu fleiri taka þetta upp til dæmis mbl.is það væri nú gaman að lesa um allt það jákvæða sem er að gerast í heiminum þó ekki væri nema í eina viku. Það yrði æfing nr. eitt síðan þyrfti að smá bæti við næst yrði það tveggja vikna jákvæðar fréttir og svo framvegis. En við verðum víst að byrja hjá okkur sjálfum eins og alltaf.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 11:50
Frábær hugmynd Júlli minn - ég er að hugsa um að taka þetta upp í skólanum - þetta er góð þraut si svona á síðustu dögunum þegar allir eru orðnir fjarska lúnir...bæði nemendur og kennarar. Í síðustu viku var jákvæðnivika - þessi vika prikavika og næsta vika á víst að vera vika hreyfingar - þá auðvitað hefst þetta allt með jákvæðni, prikum, smáknúsi (hreyfingin ;-) og gleði.
Hvernig var með kokkana í gær - eru þeir komnir í smiðinn og píparann núna ? Þú hefur örugglega fengið mörg prik frá þeim!
Knús og prik - þín Áslaug.
Áslaug Valgerður Þórhallsdóttir (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.