Nú þarf að fara hægar......og í þetta skiptið er ég ekki að tala um flutningabílstjórann sem að lenti í óhappinu í kvöld...og ég er ekki að segja að þeir bílstjórar sem óku framhjá óhappinu hafi keyrt svo hratt að þeir hafi ekki tekið eftir slysinu eða ekki náð að stoppa.Nei ég er að tala um að við þurfum að hægja á okkur. Það getur ekki verið að allir þeir bílar sem ekið hafa framhjá slysum á sl. ári hafi verið að drífa sig á fæðingardeildina eða annað álíka. Við hljótum að hafa tíma til þess að sýna náungakærleik eða gefa okkur augnablik til að aðstoða þá sem þess þurfa. Mér finnst eins og að ég sé oftar og oftar að heyra af því að fólki sé alveg sama um náungann og hugsi eingöngu um eigið skinn.....það er eitthvað rangt við þetta. Losum okkur úr þessum fjötrum gefum af okkur, það er það sem skiptir máli í lífinu...verum til staðar fyrir aðra þá verður einhver til staðar fyrir okkur.
Vöruflutningabíll fauk undir Hafnarfjalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Fimmtudagur, 3. janúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það er leiðinlegt að fá þessar fréttir frá Kræki en einhvern veginn hef ég fulla trú á að Henning og hans góða fólk eigi eftir að opna aftur en í annari og breyttri mynd. Þrátt fyrir þessa stöðu mála á þessum timapunkti erum við hér á Dalvíkinni bjartsýn á komandi ár ......enda enginn grætt á því að vera svartsýnn.
En ég má til með að setja nokkrar línur á blað um upplifun mína í gærkvöldi.
Fullt hús stiga fyrir einstaka matarupplifun í byrjun árs.
Okkur hjónum ásamt góðu fólki veittist sá heiður að kvöldi nýársdags að verða boðinn í árlegan nýársfagnað á Friðriki V. Þetta kvöld gefa meistarakokkar staðarins, Hallgrímur, Guðmundur og Friðrik ástríðunni lausan tauminn og ýmislegt er prófað með bros á vör. Eflaust eiga gestir staðarins á komandi ári eftir að fá að njóta margra listmunanna sem bornir voru á borð þetta einstaka kvöld.
Á þessu kvöldi þar sem farið var með gestina í rúmlega 5 tíma matarferðalag um okkar frábæra norðlenska hérað ásamt því að bregða okkur um stund til annara landa t.d Frakklands, Ítaliu, Spánar og Portúgal svo að eitthvað sé nefnt, fengum við að bragða á 23 mismunandi réttum ásamt kamapavíni, tveimur tegundum af hvítvíni, tveimur af rauðvíni, einni af portvíni,einni af eftiréttavíni og einni tegund af maltbjór. Ég ætla að nefna nokkra af réttunum rétt til þess að gefa innsýn í það sem boðið var uppá. Norðlensk kæfa, reyktur lax, þurrkað villisvínslæri sér innflutt frá Spáni, humarrisotto, humarcarpaccio, innbakaður humar í humarfarsi, rjúpusúpa, léttreykt andabringa með geitaosti og rúsínucapersmauki, blóbergsískrapi borinn fram á ísjaka, hægeldaður innanlærishreyndýravöðvi, villönd, heimagert konfekt, djúpsteikt skyr, súkkulaðikaka, ís og skyramisú. Réttirnir voru einhvern veginn svo fullkomnir og allir einstaklega fallega bornir fram. Það er ljóst að Friðrik, Adda, Karen og Axel, ásamt starfsfólki lögðu sig fram við að gera kvöldið ógleymanlegt og það skein í gegn að allir sem að þessu komu höfðu mikla ánægju af sem skilaði sér til gestanna. Andrúmsloftið skemmdi ekki fyrir, það var einstaklega afslappað og til að setja punktinn yfir iið í þeim efnum söng Margrét Eir undurfallega nokkur lög við undirleik Jökuls Jörgensens. Að lokum fengu allir gestir eð eiga diska sem voru sérframleiddir fyrir kvöldið og komu þeir frá Stjörnunni glergallerýi á Dalvík. Þetta kvöld undirstrikar það enn og aftur að Friðrik V. er veitingastaður í toppklassa og megum við norðlendingar vera stoltir af. Að hafa slíkan stað með fólki sem er í þessu ástríðunnar vegna skiptir alla matarmenningu á svæðinu miklu máli og styður svo sannarlega við hana í sem viðustu samhengi.
Gleðilegt og nýtt spennandi matarár.
P.s Takk fyrir okkur.
Uppsagnir á Dalvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Miðvikudagur, 2. janúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt ár.
Miðnæturbomban innkölluð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Mánudagur, 31. desember 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þessa dagana hittir maður marga og oftar en ekki berst talið að hvernig maður hefur haft það um jólin, borðað mikið og svo framvegis. Svo berst talið að veðrinu og þegar allir blanda svo umræðunni um jólin og veðrið saman berst talið hjá mjög mörgum að jólum fyrir 3 - 5 árum þegar það brast á mikil norðan stórhríð og enginn komst lönd né strönd........þetta segja nokkuð margir að séu bestu jólin sem þeir muna eftir...hmmmm áhugavert, jú enginn komst neitt, allir heima saman að spila eða gera eitthvað. Er það ekki málið með okkur, hraðinn er mikill og við endalaust að keppast við að gera svo margt....og þegar við fáuym þetta einstaka tækifæri frá nátturunnar hendi finnum við hvað það er gott að vera SAMAN heima í rólegheitum.
Bloggar | Laugardagur, 29. desember 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jæja...er rétt að athuga hvort að ég kunni á bloggið.
Ég hef verið að hugsa minn gang í bloggheimum síðustu daga, hef m.a hugsað hvort að ég ætti að strengja áramótaheit og lofa bloggi á hverjum degi á árinu 2008.....en sennilega er það of mikil pressa. En mér hefur fundist merkilegt hvað margir senda mér mail, minnast á það við mig úti á götu og jafnvel í jólakortum ...hvort að ég ætli ekki að fara að blogga aftur...hef ég verið að segja eitthvað ?....er ég að svíkja einhvern með því að blogga ekki ? Hmmmm.
En við sjáum nú bara til og ég held að ég bloggi bara þegar mig langar til og hef af því gaman en þakka innilega fyrir sýndan stuðning.
Jólin hafa verið yndilseg í nýja húsinu, já við höfum haldið jól á nýjum stað...jú mikið rétt 18. nóvember fluttum við í nýtt hús, Skógarhóla 13 á Dalvík. Jólasnjórinn mætti á réttum tíma og setti punktinn yfir iið. Nú snjóar aðeins og ég get ekki betur séð en að skíðasvæðið sem er nánast fyrir utan gluggann hjá mér verði opnað á morgun...vonandi. Ég fór í jólaboð á jóladag, þar var mikið gaman....og mikið af fólki, öll börnin höfðu fengið fullt af jólagjöfum og mikið af dóti....er leið ákvöldið var það samt heimasmíðað leikfang sem hafði verið til á heimilinu í mörg ár sem vakti mesta athyglina og veitti innilega ánægju.
Bloggar | Fimmtudagur, 27. desember 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Matur og drykkur | Miðvikudagur, 10. október 2007 (breytt 3.9.2008 kl. 14:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | Miðvikudagur, 19. september 2007 (breytt kl. 08:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggar | Miðvikudagur, 12. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | Miðvikudagur, 12. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Þriðjudagur, 11. september 2007 (breytt kl. 09:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Feb. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Af mbl.is
Innlent
- Landris nálgast nú einn metra
- Brún öskjunnar eins og hnífsegg
- Kannski þurfi Trump svigrúm til að lýsa yfir sigri
- Aukin gjaldtaka á ferðaþjónustuna í farvatninu
- Þetta gat mamman úr Garðabænum
- Gerir ráð fyrir því að Sigurjón meti sína hagsmuni
- Réðst á axarárásarmann tuttugu árum síðar
- Eldur í matartrukki við fjölbýlishús
- Þriggja bíla árekstur við Rauðavatn
- Rottweiler-hundurinn svæfður
Erlent
- Samþykkir að fresta tollum á vörur frá Kanada
- Enginn sigurvegari tollastríðs
- Segir viðræður ganga nokkuð vel
- Engin skemmdarverk voru unnin á sæstrengnum
- Mexíkó sendir 10.000 hermenn: Trump frestar tollum
- Svarar Trump og Musk með banni og riftun samnings
- Fimm Íslendingar á brottvísunarlista
- Segir róttæka brjálæðinga stýra þróunaraðstoðinni
- Úkraínskir hermenn teknir af lífi
- Danmörk einn mikilvægasti bandamaður Bandaríkjanna
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir