Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
......rauðvíninu sem við smökkuðum. Um helgina hittist hluti af rýnihóp matarsíðunnar. Ég eldaði nokkra fiskrétti sem ég ætlaði að birta myndir og uppskriftir af....en myndirnar þær fóru nú því miður fyrir bí og því segjum við aðeins frá réttunum og gerum vínunum góð skil.
1. Bleikjucarpaccio, steinselja, lime, púrtvín, chilli, salt og pipar
2. Fiskisúpa. Hrár fiskur: bleikja,þorskur og rækjur, laukur, hvítlaukur, ferskur chilli sett í matvinnsluvél með örlítilli olíu og vatni bætt smátt útí til að fá fínan jafning. jafningurinn settur í pott, rjóma, klípu af rjómaosti bætt úti, kryddað til með karrýi, salti og pipar látíð sjóða í 5 - 8 mín. Borið fram í litlum bollum.
3. Innbökuð (Smjördeig) bleikjameð gorgonsola osti. Borið fram með soðnum gulrótum, sætri kartöflu og örlítilli sítrónuólífuolíu.
4. Smjörsteiktur Túnfiskur. Smjöri og sojasósu blandað sama á pönnu, hliðunum á túnfisksteikunum velt upp úr fínu heimagerðu krydduðu brauðraspi að eigin vali. Borið fram með fersku salati og kaldri kartöflu ( Rammíslenskt smjör með kartöflunum fyrir þá sem vilja...og hver vill það ekki ? )
5. Súkkulaðikakaa la Gréta mín...og rjómi í eftirrétt.
Við smökkuðum tvö gæðavín frá www.vifilfell.is....eitt hvítt og eitt rautt: Notuðum að sjálfsögðu töfraglösin frá www.fastus.is - sjá færslu neðar.
Hvítvínið Léon Beyer Riesling 2005. 1490 í ríkinu. Við rýndum í vínin á áhugamannsins hátt og hver og einn tjáði sig. Fyrir mér var hvítvínið forvitnilegt og nýtt, það var ferskt og mér datt í hug Lime og sumar þegar ég smakkaði það. Það hentaði vel með millisterku bleikjucarpaccioinu og ég er spenntur að prófa það t.d með sterkum austurlenskum mat.
Rýnir 7: Þurrt, aðgerðalítið en ferskt, hentar vel með fiski og léttum réttum, höfðar ekkert sérstaklega til mín.
Rýnir 8:Lyktin af ávöxtum og sýru, bragð af greip og ferskjum. Milliþurrt, skemmtilegt hvað bragð og áferð breyttist eftir því hvað var borðað með víninu.
Rýnir 1: Þetta er vín sem ég drekk ekki oft og er vön sætari vínum, vínið er ferskt og örugglega gott með ostum.
sleifar.
Rauðvínið - Las Moras Black Label Malbec 2005 -Sérpöntun ÁTVR 1790 kr. Þetta vín var borið á borðið með túnfisksteikinni. Þetta var skemmtilegt, það er svo gaman að láta koma sér á óvart og það fór um mann fiðringur strax við að lykta af víninu. Haust, ber, leður, traust og ánægja. Vínið átti mann allan og það var gaman að drekka það. Það var eins og að bragðið væri á tveimur, þremur eða fleiri hæðum, klárlega með betri rauðvínum sem ég hef bragðað. Væri ábyggilega snilld með grilluðu hrefnukjöti eða svartfugli....kæri lesandi þú verður bara að prófa.
Rýnir 7:Mjög gott vín með bragðmiklum mat, góð fylling og örugglega gott með kjötréttum og grilluðum mat. Þétt og gott vín. Berjakeimur,krydd, ávaxtakeimur þá helst pera og eik...eitt af mínum uppáhaldsvínum
Rýnir 8: Lykt: kaffikeimur, bragð: fíflamjólk, mjög bragðgott, nöguð (blaut) leðurreim.
Rýnir 1: Hrikalega gott, lyktar vel og bragðast enn betur. Fullt hús
1/2 sleif.
Matur og drykkur | Mánudagur, 29. september 2008 (breytt kl. 17:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í gærkvöldi fórum við hjónin í leikhús í Rýmið hjá LA til þess að sjá Dauðasyndirnar, algjör snilld sem ég segi frá síðar. Við ákváðum að fá okkur eitthvað létt að borða á undan og fyrir valinu varð Krua Siam tælenskur staður við Strandgötuna á Akureyri. Það hafa margir staðir verið til húsa þarna, en þennan höfum við ekki komið á. Staðurinn er með heimsendingu á mat og einnig er hægt að sækja, þannig að það var töluvert af fólki á ferðinni og starfsfólk að svara í símann, en þetta er bara þannig staður. Matseðillinn er fjölbreyttur og verð nokkuð gott, matseðillinn sjálfur mætti vera vandaðri, myndir frekar óskírar og verðin handskrifuð á límmiða yfir myndina...en kannski er þetta bara heimilislegt.Við vorum boðin velkomin á hlýlegan máta og þjónustan var ljómandi góð. Við tókum sitt hvorn réttinn og rauðvínsglas með (2 litlar Lindemans flöskur ) sem hæfði vel. Ég fékk mér Satay svínakjöt á pinnum og Gréta fékk sér kjúkling með Cashew hnetum og grænmeti, með báðum réttum fylgdi diskur með hrísgrjónum og örlitlu af rifnum gulrótum og hvítkáli. Báðir réttir voru afar bragðgóðir og ljóst að það eru kunnáttumenn í eldhúsinu. Þetta kostaði fyrir okkur bæði með víni 4600 kr sem verður að teljast hagstætt eða hvað ? Krua Siam fær
og 1/2 sleif.
Matur og drykkur | Laugardagur, 27. september 2008 (breytt kl. 17:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
- Fjall upp af Eskifirði.
- Bratt og hátt hamrafjall með gróðurlitlum hlíðum fyrir ofan bæinn í Kálfafellskoti í Fljótshverfi í V-Skaftafellssýslu.
- Hæð eða lágur hryggur í Hlíð í Skaftártungu í V-Skaftafellssýslu.
- Þverhnípt, slétt berg, gráleitt á að sjá í Suður-Hvammi í Mýrdal í V-Skaftafellssýslu.
- Í túninu í Holti undir Eyjafjöllum, Rangárvallasýslu.
Samkvæmt nýjustu orðabók merkir orðið harðskafi lélegt fóður eða fæði, en harðskafatún tún með hörðum og þurrum jarðvegi. Lýsingarorðið harðskafalegur er haft í merkingunni hrjóstrugur eða harðneskjulegur (Íslensk orðabók). Tvö samsettu orðin eru merkt Austfjörðum í Orðabók Sigfúsar Blöndals. Nafnið Harðskafi kemur fyrir í Hálfs sögu og Hálsrekka.
En þar sem að þetta er nú matarblogg þá ætla ég að koma að enn einum harðskafanum og ekki þeim sísta. Harðskafi er harðfiskur og íslenskt smjör blandað saman og t.d smurt á flatbrauð. (Sjá hér um matarferð á Breiðafirðinum) Niðurstaðan er semsagt þessi mér datt harðskafi í hug vegna harðfisksins en ekki vegna kynlífisins. ...og þetta er sko sannarlega ekki lélegt fóður.
Í gærkvöldi borðaði ég á Krua Siam á Akureyri og í dag kemur smá grein, myndir og sleifagjöf.
Harðfiskur og kynlíf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Laugardagur, 27. september 2008 (breytt kl. 11:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Efnisflokkar sýningarinnar eru:
Aldarbyrjun - Fiskibærinn Reykjavík
1900-1930 Höfuðborgin - gluggi til annarra landa
1930-1940 Aðeins íslenskt
1940-1960 Hungrið hverfur, sykurinn sækir á
1960-1975 Neysluþjóðfélag í sókn
1975-2000 Matur frá víðri veröld
Aldarlok Sérkenni reykvíska eldhússins
Matur og drykkur | Miðvikudagur, 24. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vetrarfiskisúpa Dalvíkingsins.
Súpa sem yljar um hjartarætur á köldu vetrarkvöldi og kallar fram tilfinningar og löngun til að ræða málin. Gott er að hafa með þeyttan eða sýrðan rjóma og gróft brauð með heilum fræum.
Fyrir 6 8 manns.
600 gr bleikja, skorin í bita
400 gr humar
200 gr rækjur
2 laukar, smátt skornir
8 10 hvítlauksgeirar, smátt skornir
4 6 gulrætur (um 300 gr), skornar í sneiðar
1 chillípipar, kjarnhreinsaður og saxaður
1 2 msk söxuð fersk basilíka
8 10 sveppir, skornir í bita
1 dós bitaðir tómatar með oregano og basil, 400 ml
4 dl kókosmjólk
4 dl rjómi
1 fiski- og 1 sveppateningur frá Knorr í 400 ml af vatni
1 dós rækjusmurostur, 300 gr
2 dl hvítvín1 2 msk púrtvín
2 3 msk kurlaður ananas
1 stk paprikuduft
2 tsk esdragon
1 msk mango sósa, Exotic food
1/2 kúrbítur, skorinn í bita
Svartur pipar úr kvörn eftir smekk.
Salt eftir smekk í lokin en hóflega þó
Ólífuolía
Laukur, hvítlaukur og gulrætur brúnað í ólífuolíu í potti. Chilliípipar, basiliku og sveppum bætt út í ásamt tómötum, kókósmjólk, soði og rjóma. Hitað að suðu. Paprikudufti, esdragon og mango sósu, smurosti, hvítvíni, púrtvíni, kúrbít og ananas bætt í og látið malla í 20 - 25 mínútur. Að lokum er fisktegundunum þremur bætt í. Potturinn tekinn af hellunni eftir 4 mínútur og látinn bíða í 5 8 mínútur. Piprið súpuna eftir smekk, jafnt og þétt, og verið ekki feimin við kvörnina.
Matur og drykkur | Þriðjudagur, 23. september 2008 (breytt kl. 16:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þegar ég var smá gutti og fjölskyldan bjó í Höfn (Hús á Dalvík sem ég er oft kenndur við) Þá átti Gummi bróðir plötu eða kassettu með ABBA sem oft var spiluð og örugglega í berjahlaupsgerð, fjölskyldan týndi oft ber og það var búin til saft og hlaup. Núna um helgina bauðst okkur að týna rifsber hjá samstarfskonu Grétu minnar, takk fyrir það Bergljót. Í gær var svo búið til Rifsberjahlaup.....en það sem var dálítið magnað og setti af stað þægilegar minningar Deja vú eða hvað sem það er nú kallað var ABBA, já hér á þessu heimili hefur hljómsveitin ABBA verið spiluð DÁLITIÐ MIKIÐ síðan að fjölskyldan fór í bíó á Mamma Mia og 6 ára dóttir mín syngur hástöfum með. ABBA og berjahlaupsgerð......lífið breytist kannski ekki eins mikið og við viljum halda sami fílingur um 30 árum síðar.
Ég set inn myndir af nýtíndum berjum, berjum í pottinum og þegar hlaupið er komið í krukkurnar.
Uppskrift.
1 kg ber ) (Með stilkum og eitthvað af laufum)
1/2 l vatn
Soðið og stappað í c.a. 15 mín
Síað vel í gegnum taubleiu
1 lítir af berjasafa
1 kg sykur
Soðið í 25 mín
Veiða syrjuna ofan af og hella í krukkur.
Í þessari uppskrift er ekki notaður hleypir, stilkar og lauf eiga að koma að sömu notum.
Mér finnst nauðsynlegt að eiga rifsberja sultu í ísskápnum t.d. fyrir osta og kex og í sósur.
Matur og drykkur | Sunnudagur, 21. september 2008 (breytt kl. 19:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sítrónuolían sem ég keypti í Reykjavíkurskottúrnum um daginn er algjör snilld. Í fyrradag gat ég ekki beðið lengur með að prófa hana út létt kvöld túnfisksalat. Tók úr ísskápnum íssalatið góða frá Lambhaga, steinselju, gúrku, döðlur, sauðaost og bita af Gorgonzola ostinum sem ég hafði keypt í sælkera(osta)versluninni á Skólavörðustíg. Bætti við þetta salti, furuhnetum, örlitlu af smátt söxuðu súrsuðu engiferi og ,túnfisk í olíu frá ORA. Setti ríflega helminginn af gróft rifnu íssalati í tvær aflangar skálar(Magnið á myndinni er ekki í samræmi við það sem í salatið fór - hlutföllin í salatinu eiga bara að vera eftir smekk. Smátt saxað engiferið, dassi af Maldon salti, litlir teningar af sauðaostinum, furuhneturnar (Ekki verra að rista þær), túnfiskurinn, sneiddar döðlur,flysjuð og langsumskorin gúrkan, gróft söxuð steinseljan, raðað ofan og dreift yfir í bland við restina af íssalatinu....og olíunni góðu "CITRON / LEMON " frá Olivers & CO dreypt yfir, einu sinni inn á milli og létt yfir að lokum, þremur litlum bitum af Gorgonzola ostinum raðað efst...mmmm og gott er að drekka með þessu ískalt sódavatn, en enn betra er vel kælt örlítið sætt hvítvín. (Myndin af salatinu í skálunum eyðilagðist)
Matur og drykkur | Föstudagur, 19. september 2008 (breytt kl. 15:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Góðan og vindbarðann daginn
Þegar ég setti færsluna (Sjá neðar) um Kræklingaveisluna lofaði ég einnig rækju og súpuveislumyndum frá því að tökur á myndum fyrir Matreiðslubókina "Meistarinn og áhugamaðurinn" fóru fram. Bókin kemur út fyrir jólin, ég , Friðrik V og Finnbogi í Dagsljós á Akureyri gefum út. Þess má geta að Finnbogi er með frábæra ljósmyndasýningu á Glerártorgi á Akureyri þessa dagana.
Myndirnar eru síðan vorið 2007 og eru teknar á pallinum hjá Auði og Palla í Svarfaðarbrautinni á Dalvík, gestir eru Tuffur og Bryndlar, saumaklúbbur og vinahópur okkar hjóna. En njótið mynda og rækjuuppskriftar áhugamannsins úr bókinni.
Grillaðar bjórrækjur
Þegar rækjur ber á góma er það helst rækjusalat, fiskisúpa eða djúpsteiktar rækjur sem flestum dettur í hug. Það sem mér finnst mest spennandi ef maður nær í nýveidda rækju í skelinni er að handfjatla hana og bjóða hana þannig í köld salöt, hráa eða létt soðna. Þegar vinir koma saman og til stendur að setjast niður við kertaljós með hvítvíns- eða bjórglas í hönd, þá er róandi og gefur stundinni yfirvegaðan blæ að bjóða uppá grillaðar bjórrækjur með brauði og hnetusmjörssósu þar sem gestirnir pilla sjálfir á brauðið. Það að pilla á brauðið sitt gefur hugarró og nýja óútskýranlega orku meðan hugleiðingar um lífið svífa yfir vötnum.
1 kg nýveidd rækja í skelinni
1 ds 500 ml gylltur Viking bjór
Sítrónuólífuolía
Maldon salt
4 - 6 ciabatta eða spelti brauð
4 sítrónur
Köld hnetusmjörssósa
2 msk hnetusmjör
2 msk majones
2 msk sýrður 18% rjómi
Safi úr ½ sítrónu
1 msk hlynsíróp
1 tsk sætt sinnep
Pipar
Rækjurnar skolaðar í köldu vatni og sigtaðar. Bjórnum hellt yfir rækjurnar og þær látnar liggja í leginum í 30 mínútur, sigtaðar og sítrónuólífuolíu dreypt yfir ásamt 1 tsk af Maldon salti. Rækjunum skipt í tvennt. Hvor hluti er grillaður við miðlungshita í grillgrind, rækjunum velt nokkrum sinnum en samt varlega. Grillið þar til að skelin fer að hvítna, 5 - 8 mínútur ættu að duga. Skerið sítrónurnar í báta og berið fram með rækjunum. Allt hráefni sósunnar sett í matvinnsluvél, piprað eftir smekk. Brauðið skorið í litlar sneiðar og þær léttgrillaðar. Rækjurnar settar á fallegt fat eða í skál. Sítróna kreist yfir. Matargestir pilla rækjurnar. Sósu smurt á brauðið og fallegri rækjunni raðað á. Sítróna kreist yfir eftir smekk (og kröftum). Ískaldur gylltur Viking eða sætt hvítvín skemmir ekki stemmninguna.
Matur og drykkur | Miðvikudagur, 17. september 2008 (breytt kl. 09:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í gær fór ég mjög óvænt í 15 klst ferðalag, Guðmundur vinur okkar var að skutla Au pair sem er hjá þeim á flugvöllinn í Keflavík og keyra síðan til baka, þar sem að hann var einn á ferð þá bauð ég honum mig sem ferðafélaga svona svo að honum leiddist ekki já eða svo að hann sofnaði ekki . Lögðum af stað kl 04.30 og vorum komnir til Dalvíkur aftur um kvöldmat í gærkvöldi, að sjálfsögðu var rólega(löglega) ekið og stoppað í búðum og sonna. Fórum t.d í Ostabúðina (Sælkeraverslunina) á Skólavörðurstíg, keypti m.a Gorgonzola ost, ólífuolíu, heitreykta svartfuglsbringu. Það er eitt gott við þessa búð sem vert er að minnast á en það er hvað starfsfólkið veit mikið um þær vörur sem eru á boðstólnum, maður kemur ekki að tómum kofanum.
Okkur langaði að finna okkur eitthvað hlaðborð í hádeginu áður en við lagt væri í hann norður aftur. Eftir að hafa gengið í um 25 mín um 101 og ekki séð neinn stað sem bauð uppá hlaðborð komum við að Thorvaldsen og hittum þar tvo starfsmenn og spurðum um hlaðborð, nei þau buðu ekki uppá slíkt....en þau vildu endilega fá okkur inn og reyndu að veiða okkur með plokkara og íslenskri kjötsúpu og ekki bara einu sinni. það var enginn inná staðnum og ég velti því fyrir mér hvort að það sé komin kreppa í bransann og nú þurfi að veiða gestina inn
Við fundum hlaðborð á Fjalakettinum sem við skelltum okkur á. Verðið var 1640 kr á manninn ( Þjónnin vissi það nú ekki fyrst) Á hlaðborðinu var að finna, grafinn frekar feitan eldislax, innbakað grænmeti í litlum rúllum, mjög góðar, aðkeypt pate, ágætt en vorum ekki vissir hvað var í því, ferskt salat, 3 kaldar sósur, sweet chilli, aioli og einhverskonar krydduð kokteilsósa, hrísgrjón með grænmeti útí, nýbakað gott brauð, sveppasúpa og grænmetissúpa, lasagna var ágætt, fiskréttur (Ýsa) var mjög góð meðlæti var einnig kartöflugratín sem var ekki gott, það var eitthvað bragð af því sem að við könnuðumst ekki við og var ekki gott. Í eftir rétt var ein tegund, álitleg súkkulaðikaka sem reyndist bara vera álitleg, við litum á hvorn annan og skildum ekki hvernig væri hægt að gera svona vonda köku, við skildum hana eftir. Matarsíða áhugamannsins gefur með góðum vilja hádegisverðarhlaðborði Fjalarkattarins 3 sleifar. Þess má geta að það var ekki vatn á borðinu, okkur voru ekki boðnir neinir drykkir, við sóttum vatnið sjálfir. En við vorum saddir og sæmilega sáttir
Matur og drykkur | Þriðjudagur, 16. september 2008 (breytt kl. 11:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Við hittumst í fyrsta sinn í gær ég og rýnar 1- 5. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld, mikið spjallað og vöngum velt um mat drykk og glös og.....allt í einu var klukkan orðin tvö. Talandi um glös, aðalástæðan fyrir að við hittumst í gær var að prófa glös sem koma frá heildversluninni Fastus ( Sjá glasabækling á síðunni)Það komu smá skilaboð með glösunum, að taka okkar eigin glös og nýju glösin og hella jafnt í bæði og prófa bæði að lykta og drekka. Þetta var ansi merkilegt og kom okkur öllum á óvart. Glösin eru 40 c.l Universal (framleiðandinn C&S). Það er hægt að nota þau bæði sem rauðvíns og hvítvínsglös. Þetta eru ekki nein venjuleg glös, þau voru tvö ár í þróun. Vín smakkast klárlega betur í þessum glösum heldur en þeim glösum sem maður á heima. Við prófuðum tvö hvítvín og við gefum þeim einnig sleifar. ( Sjá stjörnu/sleifa gjöf áhugamannsins hér til hliðar ). Glösin henta vel eða nær eingöngu fyrir ungvín, rauðvín 5 ára og yngri og hvítvín 3 ára og yngri.
Um glösin.
Glösin komu virkilega á óvart og það er alveg ljóst að glös skipta miklu máli þegar vín er drukkið, meðalgott vín verður bara aldeilis frábært í þeim. Fyrst fannst mér þau ekki vera falleg en er ég fór að horfa aðeins meira á þau og handfjatla þau fannst mér þau töff.
Rýnir 1: Magnað, vínið bragðmeira og ótrúlegur lyktarmunur.
Rýnir 2: Verulega mikill munur á lykt, vínið einfaldlega mikið betra þessum glösum.
Rýnir 3: Lítill ilmur og flatt bragð úr heimaglösunum en úr CS glösunum er mikill og þéttur ilmur, kröftugt bragð og lifandi vín.
Rýnir 4: Glasið gefur mun meira bragð, heimaglasið mun flatara, ótrúlegt alveg.
Rýnir 5: Flott glös, mun meira bragð og lykt, fann ekki bragð af víninu fyrr en ég smakkaði úr CS glasinu.
Hvítvínin.
Fyrra vínið sem við smökkuðum var Santa Rita 120 Chardonnay 2007 - Chile umboð www.hob.is
Mér fannst vínið gott og mæli með því til að drekka eitt og sér hvort heldur sem fordrykk eða kalt á heitum sumardegi á pallinum. Það er einhver ferskleiki yfir því og það er hæfilega bragðmikið.
Rýnir 1: Vínið gott, svolítið rammt (þurrt) í byrjun.
Rýnir 2: Svaka ávaxtakeimur, fínt vín
Rýnir 3: Fallega gult, sætt og gott, heppilegt til að sötra á sólríkum degi eitt og sér.
Rýnir 4: Gott vín hóflega sætt og góð lykt
Rýnir 5: Gott vín.
Seinna vínið sem við smökkuðum var Torres Vina Sol 2007 Paradella Spánn umboð www.kkarlsson.is
Þetta er skemmtilegt vín sem ég á örugglega eftir fá mér aftur og þá t.d með fiski. Blómailmur, ilmur af ósnertu engi og ferskri ekki of þroskaðri peru. Gaman að drekka
Rýnir 1: Ferskt og gott vín, gott með smáréttunum.
Rýnir 2: Rennur vel í munni, létt og ferskt.
Rýnir 3: Þurrt og bragðmikið, ekta fiskivín endist vel í glasinu
Rýnir 4: Ekki eins sætt eins og ég bjóst við miðað við lykt. Mjög gott vín, kom mjög vel út með smáréttunum.
Rýnir 5: Gott, datt í hug saltaðar gellur með þessu.
og 1/2 sleif
Þetta var skemmtileg byrjun og ég er spenntur fyrir næsta skipti og sjá hvernig þetta þróast. Svona til að gera kvöldið enn skemmtilegra bjó ég til nokkra smárétti úr því hráefni sem ég átti til. Mér finnst mjög skemmtilegt og örlítið meiri áskorun að elda eða búa eitthvað til úr því sem er til, ekki alltaf að fara í búðina ef að eitthvað vantar, um að gera að leysa það öðru vísi. Ég var með kalda rétti, súkkulaðihúðuð jarðaber, djúpsteikt gróft kornabrauð: velti því uppúr eggi, fínt rifnum osti, smá salti og fíkju ediki, smápizzur: með fínt mixaðri steinselju, hvítlauk, svörtum sólþurrkuðum ólífum og smá af pipar og ostur yfir, fíkjusalat: hið magnaða íssalat frá Lambhaga, jarðaber, furuhnetur, spænskur sauðaostur, ólífuolía og fínt saxað timian, ferskur túnfiskur: smjörsteiktir teningar með heimagerðu brauðraspi og salti sem ég keypti á Slow fish sýningunni á Ítalíu í fyrra Sel rose de ´Himalayja, að lokum var ég með marineraðar ólífur með steini, sem mér voru færðar frá Brussel í s.l haust, ég hef ekki tímt að opna þetta fyrr en oft búinn að mæna á þær, þær voru biðarinnar virði.
Matur og drykkur | Laugardagur, 13. september 2008 (breytt kl. 17:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Sterk upplifun
- Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja.....og gleðja.
- Skilaboð úr skjóðunni.....
- Chia Smoothie. Klárlega fyrir þig !
- Feykiholl kjúklinga og grænmetis súpa
- Ný uppskrift.! Hollt og gott rasp á Fisk eða kjúlla.
- Af hverju er ekki bara nóg fyrir okkur að hafa bara nóg. ?
- Dagur með ástinni þinni - Hvernig skal koma á óvart.
- Allt gengur betur.....Vertu jákvæður !
- 10 Fiskar - 10 hljómplötur.
- Sojan sigrar natríumbardagann við saltið
- Svarta kómedían lýsir upp skammdegið - Þrefalt húrra fyrir LA.
- Snyrtilegt og sárfyndið leikhús
- Kynþokki, rokk og ról - Leikfélag Akureyrar þorir !
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Feb. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Greinar og skrif
Tenglar
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Matur og gleði Blogg á ensku um mat, viðburði og lífið
- Cool leikjasíða Kíktu á þessa
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Lára Stefánsdóttir
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Blúshátíð í Reykjavík
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- DÓNAS
- Eyrún Elva
- Nonni
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Guðrún Emilía Guðnadóttir